Til heimabrúks Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. mars 2015 07:00 Ræða Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í öldungadeild Bandaríkjaþings í fyrradag endurspeglar stefnu sem heimsbyggðin hefur mátt horfa upp á áratugum saman af hendi lands hans. Böðlast skal áfram með ófriði, hvað sem tautar og raular. Í ræðunni fann Netanjahú allt til foráttu viðræðum sem langt eru komnar um kjarnorkuáætlun Írans. Hann hefur raunar í nærri tvo áratugi haft uppi dómsdagsspár um yfirvofandi kjarnorkuvopnaógn sem af Íran stafi, án þess að þar hafi nokkuð gengið eftir. Hann sagði áætlunina (sem enginn veit enn hvernig lítur út) ógna heimsbyggðinni allri. Viðhorf hans hafa mætt heilmikilli gagnrýni á heimsvísu, enda ljóst að samningur og eftirlit í Íran hlýtur fremur að vera steinn í götu þróunar kjarnorkuvopna þar en að flýta fyrir henni. Þannig hefur Obama Bandaríkjaforseti bent á að ekkert nýtt hafi komið fram í ræðunni og engar lausnir þar að finna. Einhver kynni líka að segja að forsætisráðherra Ísraels sé glöggur á flísina í auga náungans, en blindur á bjálkann í eigin auga. Í það minnsta var ekki að trufla hann feluleikur Ísraels með eigin kjarnorkuvopn, stríðsglæpir og ofbeldi í garð Palestínuaraba og ólögleg landtaka með margítrekuðum brotum á alþjóðasamþykktum og -lögum. Eins kynni líka einhverjum að þykja holur hljómur í herkvaðningu Netanjahús gegn hryðjuverkum, verandi ráðherra ríkis sem á rót stofnunar sinnar í hryðjuverkum og ofbeldisverkum í garð Breta sem áður fóru með landstjórn í Palestínu. Bandaríkjamönnum til hróss má segja að heimsókn Netanjahús í öldungadeildina var ekki óumdeild. Tugir þingmanna voru fjarverandi, flestir demókratar, auk sjálfs forseta Bandaríkjanna, Baracks Obama. Aðstoðarmenn þingmanna voru hvattir til að fylla auð sæti til þess að forsætisráðherrann þyrfti ekki að hafa hálftóman salinn fyrir augunum. Frekar pínlegt. Uppistand Netanjahús í Bandaríkjaþingi er hins vegar ástæða til að bregða ljósi á að nú, hálfu ári eftir svívirðilega árásahrinu Ísraels á óbreytta borgara á Gasa sem lauk með vopnahléi í september í fyrra, hefur uppbygging á svæðinu ekki komist af stað á ný svo neinu nemi og herkví Ísraels um Gasa með öllum sínum takmörkunum enn við lýði. Rifja má upp, líkt og gert er í nýrri umfjöllun hjálparsamtakanna Oxfam, að yfir hundrað þúsund heimili Palestínumanna voru eyðilögð í árásunum. Væntanlega er Netanjahú ljóst að ræða hans á Bandaríkjaþingi kemur ekki til með að skipta nokkru máli varðandi nýjan fjölþjóðasamning við Íran um kjarnorkueftirlit, né heldur hafa áhrif á stuðning Bandaríkjanna við Ísrael. Herská ræða hans er til heimabrúks í komandi þingkosningum í Ísrael, sem fram fara eftir um hálfan mánuð. Óskandi er að herskáir ofbeldismenn zíonismans, á borð við Benjamín Netanjahú, beri skarðan hlut frá borði í þessum kosningum og til valda komist skynsamt fólk sem getur látið af ofbeldi og ofríki í garð nágranna sinna í Palestínu. En líkast til er það langsótt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Óli Kr. Ármannsson Tengdar fréttir Netanyahu gagnrýnir viðræður Bandaríkjanna við Íran „Leiðtogar Bandaríkjanna hafa áhyggjur af öryggi ríkisins. Leiðtogar Ísrael hafa áhyggjur af því að ríkið lifi af.“ 2. mars 2015 16:44 Segir kjarnorkukapphlaup vera yfirvofandi Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hóf ræðu sína á Bandaríkjaþingi í gær með því að segja að sér þætti leitt hve umdeild hún hafi orðið. Hann hafi alls ekki ætlað sér að vera „pólitískur“. 4. mars 2015 07:15 Óttast samninga við Íransstjórn Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, kom til Bandaríkjanna í gær og hyggst ávarpa Bandaríkjaþing í dag. Barack Obama Bandaríkjaforseti ætlar ekki að vera viðstaddur. 3. mars 2015 08:15 Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun
Netanyahu gagnrýnir viðræður Bandaríkjanna við Íran „Leiðtogar Bandaríkjanna hafa áhyggjur af öryggi ríkisins. Leiðtogar Ísrael hafa áhyggjur af því að ríkið lifi af.“ 2. mars 2015 16:44
Segir kjarnorkukapphlaup vera yfirvofandi Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hóf ræðu sína á Bandaríkjaþingi í gær með því að segja að sér þætti leitt hve umdeild hún hafi orðið. Hann hafi alls ekki ætlað sér að vera „pólitískur“. 4. mars 2015 07:15
Óttast samninga við Íransstjórn Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, kom til Bandaríkjanna í gær og hyggst ávarpa Bandaríkjaþing í dag. Barack Obama Bandaríkjaforseti ætlar ekki að vera viðstaddur. 3. mars 2015 08:15
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun