„Ég er búinn að búa hérna hluta ársins í um þrjátíu og fimm ár svo þetta er orðið heilmikill hluti af mér. Ég ver miklum tíma á Hjalteyri við Eyjafjörð og þar er mjög gott að vera og starfa. Að auki er ég með íslenska samstarfsaðila bæði heima í Amsterdam og svo auðvitað hér þannig að þessi bönd eru orðin sterk.“
Í tilefni sýningarinnar kemur út á vegum Listasafnsins á Akureyri vönduð bók eftir Jan Voss, With the Back to the Future, sem gefin verður út á ensku. En sem ungur listamaður fékkst Jan Voss við að teikna teiknimyndasögur sem hann prentaði sjálfur og gaf út. Hann gekk síðar til liðs við félaga sína, þær Henriëtte van Egten og Rúnu Thorkelsdóttur, og síðastliðin 30 ár hafa þau í sameiningu rekið hina einstöku jaðar-bókaverslun Boekie Woekie en þar eru seldar bækur eftir listamenn.

Spurningin „hvað er mynd?“ er undirliggjandi þáttur í viðfangsefnum Jan Voss. Þó að óhefðbundnar vinnuaðferðir hans hafi stöku sinnum kallað fram svipleiftur þess sem gætu hafa verið svör þá hefur leit hans – sem spannar ólíka miðla – ekki bent á neitt umfram það sem væri speglun af einhverju öðru.
Aðspurður um stíl, straum og stefnur svarar hann að það sé helst stílleysi sem einkenni verk hans og hafi löngum gert. „Ég held að það lýsi því í rauninni best. Ég vinn á einhverjum stað sem er þarna einhvers staðar á milli heimspeki og sjálfsefa. Ég nýti ólíka tækni og ólíka miðla svo þetta verður allt talsvert tilraunakennt. Líklega er helst hægt að tala um breidd í þessu samhengi. Breið-tækni og breið-miðlun enda hef ég alla tíð verið ákaflega leitandi.“
Titill sýningarinnar Með bakið að framtíðinni bendir þó til þess að Jan Voss sé farinn að horfa yfir ferilinn. „Já vissulega. Maður er kominn á þann aldur að það er meira líf að baki en fram undan. Fyrir mér er þessi sýning vissulega ákveðið endurlit. Innsýn í viðhorf, hugmyndir og sögu liðinna daga. Í því tillit er þetta yfirlitssýning.“