Lífið

Gefur út göngubók og skipuleggur fyrstu göngugarpa útihátíðina

Guðrún Ansnes skrifar
Einar Skúlason hefur gengið mikið með gönguklúbbnum Vesen og Vergangur. Hann gaf nýlega út bókina Lóa með strá í nefinu og setur á fót fyrstu gönguútihátíðina á Íslandi um verslunarmannahelgina.
Einar Skúlason hefur gengið mikið með gönguklúbbnum Vesen og Vergangur. Hann gaf nýlega út bókina Lóa með strá í nefinu og setur á fót fyrstu gönguútihátíðina á Íslandi um verslunarmannahelgina.
„Hugmyndin er að hver gönguleið sé ævintýri, ekki bara fallegt útsýni,“ segir Einar Skúlason göngugarpur, sem nýlega gaf út göngubókina Lóa með strá í nefi og setur á fót fyrstu gönguútihátíðina á Íslandi um verslunarmannahelgina. „Bókin er til þess fallin að gera fólki kleift að fara aðrar leiðir en bara Esjuna og Úlfarsfellið, og bæta þá aðeins kjöti á beinin með upplýsingunum sem fylgja hverri leið,“ segir Einar. Sjálfur hefur hann verið iðinn við kolann og gengið mikið með gönguklúbbnum Vesen og Vergangur, og haft gaman af að segja sögur. „Ég fór að kynna mér staðina betur og grafast fyrir um sögur, svo þaðan spratt hugmyndin að þessari leiðsögubók,“ útskýrir Einar.

Auk þess að ýta bókinni úr vör er Einar í óðaönn að undirbúa útihátíð sérsniðna að göngugörpum um verslunarmannahelgina. „Hátíðin verður haldin á Súðavík í samstarfi við heimamenn. Munu heimamenn sjá um leiðsögnina. Það verður ákaflega gaman að fá svona persónulega leiðsögn um svæðið,“ bendir Einar á og segir eitthvað fyrir alla á hátíðinni: „Yfir helgina verður farið í fimmtán gönguferðir, bæði fjölskylduvænar og svo strembnari fyrir þá sem treysta sér í svoleiðis.“

Munu gestir hátíðarinnar geta gist í orlofshúsum í Súðavík auk þess sem gott tjaldstæði er á staðnum. „Mýrarboltinn er svo í gangi hinum megin við fjallið, og verður svona vinahátíðin okkar,“ segir hann, skellir upp úr og bætir við: Engin samkeppni þarna á milli, en annars þarf ekkert alltaf að skilgreina vináttu.“

Einar segir göngusportið býsna fjölskylduvænt og má með sanni segja að göngubakterían hafi hreiðrað um sig hjá sonum hans þremur. Sá yngsti, tólf ára, gekk til að mynda Fimmvörðuháls með pabba sínum og bræðrum í fyrra og hyggjast þeir svo allir leggja Laugaveginn undir fót í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.