Hannes býst við að fara í sumar: „Það eru enn ljón í veginum“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. júní 2015 07:30 Hannes Þór Halldórsson hefur vakið áhugga nokkurra félaga. vísir/ernir
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson segir allar líkur á því að hann muni yfirgefa norska B-deildarfélagið Sandnes Ulf í sumar. Eins og fram kom í norskum miðlum í vikunni hefur tyrkneskt félag lagt fram tilboð í Hannes Þór en þar að auki hafa önnur lið sýnt honum áhuga. „Ég er að meta stöðuna sem upp er komin og ætla að skoða aðra möguleika einnig. Það er eitt og annað í umræðunni og ég þarf að meta plúsa og mínusa í öllum aðstæðum,“ sagði hann í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann segir þó að flest bendi til þess að hann sé á leið annað í sumar. „Það eru þó enn ljón í veginum en ég veit af áhuga liða og þessi mál eru komin lengra en nokkru sinni fyrr,“ segir Hannes sem var orðaður við önnur félög eftir að Sandnes Ulf féll úr norsku úrvalsdeildinni í haust. Hann vill þó lítið segja um hvort honum hugnist að spila í Tyrklandi né heldur nafngreina félagið sem gerði honum tilboð. „Það eru kostir og gallar við allt saman sem ég þarf að vega og meta út frá því hvaða aðrir kostir eru í stöðunni. Þetta er eitthvað sem ég þarf að melta,“ sagði Hannes Þór Halldórsson.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Fótbolti Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Íslenski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Sjá meira