Á meðal viðburða er gaman-einleikurinn Let's talk Arctic en Benedikt Karl Gröndal fer með öll hlutverk þeirrar sýningar og bregður sér meðal annars í gervi Helga magra og Þórunnar hyrnu, Jóns Sigurðssonar og annarra frumbyggja við Eyjafjörð. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson og hann segir að sýningin sé vissulega sérhönnuð fyrir ferðamenn en auðvitað geti líka verið forvitnilegt fyrir Íslendinga að koma og sjá sýningu með þessum óvenjulega vinkli.

Að koma með sýningu með þessum hætti er vissulega ákveðin tilraun en við hér á Akureyri erum að vinna á tólf en ekki níu mánaða viðburðaári eins og algengt er með menningarhús. Það verður því mikið að gerast í allt sumar og má þar nefna fjölda tónleika og annarra listviðburða, við einfaldlega framleiðum eins mikið og við getum.
En við verðum svo að bíða og sjá hvernig tekst til með leiksýninguna sem tilraun því Benedikt Karl Gröndal leikari, sem leikur reyndar einn í sýningunni bróðurpartinn af þeim sem bjuggu við Eyjafjörðinn lengi vel, verður keyrður áfram alveg miskunnarlaust í allt sumar með fimm sýningum á viku.