
Áskorunin að vera einn

Margir líta á einveruna sem einhvers konar tómarúm og verða eirðarlausir í slíkum aðstæðum, líður jafnvel illa. Gjarnan fara dagarnir í að fylla upp í þetta tómarúm, þeir raða verkefnum hverju á eftir öðru svo að aldrei eða sjaldan sé laus stund eða rými fyrir tómið.
Margir finna jafnvel fyrir snert af samviskubiti ef stórar eyður er að finna í dagatalinu og finnst þeir þurfa að gera eitthvað við tímann sem sífellt líður hraðar.
Svo er það nú líka þannig að okkur mannfólkinu þykir gaman að segja frá annríki og fjölbreyttum uppátækjum, jafnvel í óspurðum fréttum.
Það er ekkert spennandi við að gera ekki neitt, eða hvað?
Vanmetið fyrirbæri
Segja mætti að í nútímaþjóðfélagi væri þetta tómarúm vanmetið fyrirbæri því ef ekki væri fyrir það hefði efnið varla mikinn tilgang.
Kyrrðin, friðurinn, rými til að velta hlutum fyrir okkur og vinna okkar verk liggur í tómarúminu. Við höfum gott af því að vera stundum ein svo að við njótum frekar og kunnum að meta félagsskap annarra og aðra tilbreytingu í lífinu.
Lífið á ekki að vera eins og rússíbani alla daga, allan ársins hring. Stundum þarf að staldra við, hugsa um það hvernig okkur líður núna, gera alls ekki neitt í smátíma heldur leyfa sér að sleppa takinu á tímanum og njóta tómarúmsins.
Fyrir flestalla sem ég þekki og sjálfa mig líka er þetta hrein og bein áskorun sem vert er að taka, allavega endrum og eins.
Tengdar fréttir

Fáðu fjölskylduna með í lið
Börn geta tekið þátt í líkamsrækt foreldranna ef foreldrar passa að virkja þau með sér.

Óvissan er nærandi
Þær Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir hafa slegið í gegn með grínþáttum sínum Þær tvær á Stöð 2. Þær segjast vera að upplifa langþráðan draum í nýjum, gefandi og ólíkum hlutverkum.

Ég gerði hrikaleg mistök
Lendirðu stundum í því að segja eitthvað vitlaust og eyða afganginum af deginum í það að skamma þig fyrir það? Finnst þér þú alltaf vera að gera eitthvað vitlaust eða eru aðrir í kringum þig fífl og fávitar sem geta aldrei gert neitt rétt? Lestu áfram

Hvað þýðir það að vera hamingjusamur?
Getur verið að sífellt fleiri valkostir rugli okkur í ríminu í leit okkar að hamingjunni og byrgi okkur sýn á hið einfalda og það sem er beint fyrir framan augun á okkur? Er hamingjan hér?

Endurskoðuð áramótaheit
Nú er árið rúmlega hálfnað og því gott að skoða hvort þú sért á þeim stað sem þú vilt vera á.

Svarið er já…!
Hefurðu velt því fyrir þér hvað myndi gerast í þínu lífi ef þú segðir oftar já í stað þess að segja nei?

Láttu gott af þér leiða
Þeir sem þurfa á hjálp að halda eru kannski nær en þig grunar. Fólk er oft og tíðum óduglegt að biðja um hjálp nema þegar neyðin bankar upp á, vandamálin geta þá oft verið orðin svo stór að erfitt getur verið að leysa þau

Sjúkrakassi fyrir sálina
Það er alltaf ánægjulegt að kynnast nýjum verkfærum sem gera manni fært að láta sér og sínum líða betur, geðræktarkassinn er eitthvað sem ætti sannarlega að vera til á hverju heimili.

Komdu með og gerðu góðverk í leiðinni
Ætlar þú ekki alveg örugglega að taka þátt á einhvern hátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Hérna eru nokkur atriði sem gott getur verið að hafa í huga til þess að gera lífið örlítið einfaldara á hlaupum.