Skáld í Bókasafni Seltjarnarness Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. febrúar 2016 10:45 Linda gaf nýverið út bókina Frelsi. Vísir/Anton Brink
Ljóðskáldin Eyþór Árnason og Linda Vilhjálmsdóttir verða gestir bókmenntakvölds Bókasafns Seltjarnarness í kvöld sem hefst klukkan 19.30. Bæði gáfu þau Eyþór og Linda nýverið út ljóðabækur, Eyþór bókina Norður og Linda bókina Frelsi. Um bók Lindu segir útgefandi þetta: „Frelsi geymir um fimm tugi beittra, pólitískra ljóða: meitlaðar og áhrifaríkar ljóðmyndir spegla samfélag og samtíma og þvinga jafnvel lesandann til miskunnarlausrar sjálfsskoðunar. Áleitin bók sem hreyfir við hugsunum og tilfinningum.“Eyþór hugsar norður þegar hann yrkir.Vísir/HAGHér er svo tilvitnun í Eyþór: „Ég sæki hunang í bækur, smjör í snemmsprottnar sléttur, eld í ókleifa kletta og ást í koldimma hella, vín djúpt í brunna, vatn í dökkgræna skóga, fótspor í kvöldbláa dali og heimþrá í gáskafull stef. Þess má geta að Eyþór hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu ljóðabókina sína, Hundgá úr annarri sveit.
Menning Mest lesið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Lífið Nýr Rambo fundinn Bíó og sjónvarp Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira