Evrópuríki hvött til að bregðast við Zika Ásgeir Erlendsson skrifar 3. febrúar 2016 19:59
Evrópuríki eru hvött til að bregðast við og vera viðbúin því að Zika veiran nái til álfunnar með hækkandi hitastigi. WHO segir það áhyggjuefni að veiran geti mögulega borist manna á milli með kynmökum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsti því yfir á mánudag að útbreiðsla Zika veirunnar, sem nú geisar í Suður-Ameríku, sé ógn við lýðheilsu. Í dag varaði stofnunin við því að veiran kynni að berast til Evrópu og ríki álfunnar þyrftu að vera viðbúin. Líklegast er talið að veiran berist til álfunnar með moskítóflugum í farangri ferðalanga sem koma frá smitsvæðum. Einnig er varað við því að moskítótegundin Aedes, sem ber Zika veiruna, kynni að ná fótfestu í álfunni með hækkandi hitastigi. Tegundin er sjaldgæf í Evrópu en hefur fundist í Hollandi og á portúgölsku eyjunni Madeira. Í gær var svo staðfest að fyrsta tilfelli veirunnar hefði komið upp í Bandaríkjunum. Talið er líklegt að veiran hafi smitast með kynmökum en hingað til hafa langflest tilfelli borist í menn vegna bita moskítóflugna. Brasilía hefur orðið verst úti en frá því að fyrsta tilfelli veirunnar greindist í maí í fyrra hafa 4000 smitast þar í landi. Þunguðum konum hefur verið ráðið frá því að ferðast til landa í Suður-Ameríku þar sem veiran geisar. Sterkar vísbendingar eru um að veiran geti valdið fósturskaða en hætta er á að hún hafi áhrif á heilaþroska fósturs.
Zíka Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira