Óvæntur Fylkissigur í Eyjum | Ramune hetja Hauka Anton Ingi Leifsson skrifar 20. febrúar 2016 15:57 Ramune var hetja Hauka á Ásvöllum. vísir/stefán
Fylkir kom heldur betur á óvart og vann ÍBV í Vestmannaeyjum í dag í Olís-deild kvenna, en fjórum leikjum af sex er lokið í dag. Gestirnir úr Árbænum voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 19-15, og unnu að lokum eins marks sigur, 32-33. Með sigrinum er Drífa Þorvalsdóttir gerði níu mörk fyrir heimastúlkur, en Vera Lopez kom næst með átta. Í liði Fylkis var Patricia Szölösi markahæst með átta mörk, en Thea Imani Sturludóttir gerði sjö. ÍBV er eftir tapið í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig, þremur stigum á eftir toppliði Gróttu. Fylkir er í áttunda sætinu með 18 stig. Haukar unnu sigur á FH í Hafnarfjarðaslag að Ásvöllum í dag, en lokatölur urðu 24-23. Haukarnir leiddu í hálfleik með þremur mörkum, 14-11. Ramune Pekarskyte tryggði Haukum sigur tíu sekúndum fyrir leikslok með sínu sjöunda marki, en Karen Helga Díönudóttir var markahæst með sjö. Í liði FH gerði Elín Anna Baldursdóttir níu mörk. Eftir sigurinn eru Haukar í öðru sæti deildarinnar með 34 stig, einu stigi á eftir Gróttu á toppnum. FH er í næst neðsta sætinu með 7 stig. Fram vann afar auðveldan sigur á ÍR í Safamýrinni. Staðan í hálfleik var 14-11 og lokatölur urðu 30-18. Ragnheiður Júlíusdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði þrettán mörk fyrir Fram, en næstar komu með þrjú mörk. Brynhildur Bergmann og Sigrús Ása Ásgrímsdóttir skoruðu fimm hvor fyrir ÍR. Fram er eftir sigurinn í fjórða sætinu með 31 stig, en ÍR er í ellefta sætinu með átta stig. Selfoss lenti ekki í neinum vandræðum með að Aftureldingu á heimavelli, en lokatölur 32-21 á Selfossi í dag. Selfoss í 7. sæti með 22 stig, en Afturelding á botninum með þrjú stig.
Olís-deild kvenna Mest lesið Guðlaug Edda á von á barni Sport Bandaríska landsliðið var niðurlægt í seinni hálfleik Fótbolti Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Enski boltinn Handa- og fótalaus en sakaður um morð Sport Gaf stoðsendingu á son sinn og setti enn eitt metið Körfubolti Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn Enski boltinn Sjáðu mörkin hans Orra: Ungi fyrirliðinn okkar mætti aftur með stæl Fótbolti „Við þurfum að læra að klára þessa leiki“ Fótbolti Guðjón Valur og strákarnir hans unnu áttunda leikinn í röð Handbolti Tómas Valur skiptir um skóla í Bandaríkjunum Körfubolti Fleiri fréttir Guðjón Valur og strákarnir hans unnu áttunda leikinn í röð Haukakonur komnar í 1-0 yfir eftir góðan endakafla Haukur Þrastar var stórkostlegur í stórsigri Ljónanna Gísli, Ómar og Elvar stigu stórt skref í átt að þýska titlinum Donni sótti mikilvægt stig gegn lærisveinum Arnórs Valskonur hnykluðu vöðvana í lokaumferðinni Fram tók forystuna í einvíginu gegn ÍR Vill ekki koma heim með „kúkinn á bakinu“ eftir dvöl hjá Barcelona „Hann lýgur bara til að komast undan þessu“ Fjölnir vann fyrsta leikinn Neitaði að hefja seinni hálfleik fyrr en stuðningsmenn hlýddu „Of stórt tækifæri til að hoppa ekki á það“ „Þetta eru tveir úrslitaleikir“ FH-ingar 1-0 yfir á móti meisturunum Haukarnir léku sér að Mosfellingum í fyrsta leik Strákarnir okkar með Serbíu og Úkraínu í riðli Hæstánægður á Íslandi þrátt fyrir neglu í andlitið Hópurinn sem á að koma Íslandi á fjórða stórmótið í röð „Stelpurnar skipta okkur alveg jafn miklu máli og strákarnir“ Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir „Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ „Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Uppgjörið: Valur - HK 42-39 | Deildarmeistararnir þurftu framlengingu KA-menn fögnuðu eftir rosalegan leik í Eyjum Óðinn var fullkominn í flottum sigri Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ „Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Elvar með stórleik í flottum sigri Sjá meira