Steinunn Sigurðardóttir hefur lengi verið á meðal þekktari fatahönnuða Íslands og í raun er hún listrænn ráðgjafi verkefnisins hérlendis. Einn hluti af mörgum verkefnum hvers fatahönnuðar er að vinna með ljósmyndara og hefur samvinna fatahönnuðar og ljósmyndara í gegnum söguna leitt af sér ótrúlegt myndefni. „Ég fór í Norræna húsið og hitti stjórnanda hússins á fundi með bók af verkum Cooper og Gorfer til að fá þær í þetta verkefni. Ég var búin að skoða vinnu þeirra í gegnum tíðina því myndefni þeirra hefur snúist meira um hugarheiminn og söguna frekar en tísku í því formi sem flestir þekkja.
Norræna húsið samþykkti þær sem sýningarstjóra og í framhaldi lögðust Cooper og Gorfer yfir verkefnið og með sinni eigin fagurfræði og tækni í ljósmyndun festu þær ævintýraheim okkar fatahönnuðanna í hreint undraverðu myndefni.“
Sýningin var fyrst opnuð í Hönnunarsafninu í Frankfurt, þaðan fór hún í Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, Norræna húsið í Færeyjum, Coda hönnunarsafnið í Hollandi, Norræna húsið í Reykjavík, og þaðan er hún síðan á leiðinni til Bandaríkjanna.
Sýningin kallast The Weather Diaries og segir Steinunn að vissulega höfði veðurfarið sérstaklega til fatahönnuða á norðurslóðum. „Veðrið, sérstaklega yfir vetrartímann, býður kannski ekki upp á marga valkosti og það hefur áhrif á hvernig við klæðum okkur. Hvernig við klæðum okkur er líka hluti af tjáningu einstaklingsins og í gegnum söguna hafa föt oft verið notuð sem hljóðlátt tjáningarform. Konur hafa notað þetta tjáningarform meira en karlmenn og kannski vegna þess að þær höfðu ekki jafnan grundvöll fyrir tjáningunni. Fatnaður er því stór hluti af hver við erum, en við eigum líka í tilfinningalegum tengslum við land og þjóð og flest okkar á sýningunni tengdu sig við ræturnar.“

Verkið sýnir þúsundir eininga sem hanga úr loftinu á títuprjónum og tvinna. Saman mynda þessar einingar skúlptúrinn sem flestir sjá sem kjól. Ekkert er saumað fast í þeim skilningi en það er eins og við horfum á flík, hún er laus í rýminu og hangir einungis á þráðum. Verkið er síðan tekið allt í sundur í lokin og eftir sitja þá einingarnar einar og sér í mörgum kössum. Ég hef sett þetta verk upp fimm sinnum en það tekur um viku að setja þetta upp með fjórum til fimm aðstoðarmönnum.“
Steinunn hvetur landsmenn til að sjá þessa sýningu því hún er ekki hefðbundin ljósmyndasýning, heldur frekar ferðalag til tunglsins, en sýningin er opin alla daga frá kl. 11-17 í Norræna húsinu.
Viðtalið birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. apríl.