Ólafur vill þó ekki gefa upp nákvæmlega hversu hár gosbrunnurinn verður sem staðsettur verður í hinni gríðarstóru tjörn sem nefnist Grand Canal.
„Ég gæti sagt ykkur hversu hár hann á að vera en ég ætla ekki að gera það vegna þess að áhorfandinn þarf að ákvarða hversu hátt er hátt,“ sagði Ólafur Elíasson í samtali við fréttastofu AFP.
Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að gríðarstór gosbrunnur yrði reistur þegar höllin var byggð á 17. öld en ekki tókst að koma honum í gagnið þrátt fyrir tilraunir þess efnis.

Ólafur mun einnig umbreyta tveim trjálundum í hallargarðinum. Í öðrum þeirra mun hann dæla þoku eða gufu og í hinum mun hann koma fyrir jarðvegi sem gríðarstór ísjaki úr Grænlandsjökli skyldi eftir sig en ísjakinn var hluti af listaverki Ólafs sem hann setti upp fyrir loftslagsráðstefnuna í París sem fram fór á síðasta ári.
Ólafur segist hafa gengið um höllina og hallargarðinn að nóttu til þess að fá tilfinningu fyrir staðnum í undirbúningu sínum fyrir uppsettningu listaverksins en Ólafur mun einnig setja upp smærri listaverk inn í höllinni sjálfri.
Sýningin mun opna 7. júní næstkomandi og standa til 30. október.