Erfiðleikar í herbúðum Reykjavíkurdætra Birgir Örn Steinarsson skrifar 9. júní 2016 17:03
Rapparinn Vigdís Ósk Howser tilkynnti í dag á Facebook að hún hygðist hætta í Reykjavíkurdætrum eftir sumarið, eða þegar væntanlegri tónleikaferð sveitarinnar til Evrópu lýkur. Rappararnir eru við það að leggja lokahönd á nýja plötu og búið er að bóka sveitina á fjórar tónleikahátíðir í sumar.Vigdís útskýrir brotthvarf sitt með þeim hætti að hún vilji einbeita sér að andlegum bata vegna nauðgunar sem hún varð fyrir um sjö árum síðan. Hún segir að upphaflega hafi það verið gott fyrir bata sinn að ganga til liðs við sveitina en segir fjölmiðlaathyglina sem fylgt hefur í kjölfarið hafa orðið til þess að auka á kvíða sinn og hræðslu. „Þegar maður hefur rekið sig oftar í en manni langar og maður er byrjaður að grafa gröf sem er svo djúp og engin grípur í höndina manns en þú finnur fyrir fingrunum á fólki sem er að teygja sig niður að reyna að ná þér aftur upp. Þegar þú finnur fyrir fingrunum þá veistu að það er fólk sem stendur við bakið þitt. Að semja rapp hefur gefið mér mikið og hefur það hjálpað mér mikið. Hinsvegar að vera svona mikið í sviðsljósinu og skandalast fyrir þjóðina oftar en einu sinni hefur ekki hjálpað mér mikið. Ég hef áunnið með mér kvíða og hræðslu, ég er sterk en ég er líka veik,“ segir Vigdís meðal annars í færslunni sem birtist á Facebook.RVKDTR eru lífrænt batteríBrotthvarf Vigdísar kemur í kjölfar orðróms um óstöðugleika innan sveitarinnar. Kolfinna Nikulásdóttir, eða Kylfan eins og hún hefur verið kölluð, staðfestir að svo sé í samtali við Vísi. „Það eru erfiðleikar í hljómsveitinni, alveg eins og gerist í samstarfi á meðal manneskja,“ segir Kolfinna. „Við erum margt fólk sem kemur úr ólíkum áttum og að sjálfsögðu geta komið upp erfiðleikar. Það er enginn að fara ljúga því að það gangi allt eins og í sögu.“ Kolfinna segir RVKDTR ekki virka eins og aðrar sveitir. Það komi til vegna gífurlegs fjölda liðsmanna og óhefðbundna starfshátta. „Þetta er batterí sem er mjög lífrænt. Íslendingar eiga mjög erfitt með að skilja að Reykjavíkurdætur eru mjög mikið Wild Card. Það hefur verið reynt frá upphafi að festa niður hvað við séum. Það voru fjölmiðlar sem skýrðu okkur hljómsveit í upphafi, ekki við. Við skýrðum bara lag Reykjavíkurdætur sem okkur langaði til þess að gera saman. Mér finnst það merkilegt að eitthvað svona batterí, eða orka, sé óskilgreinanleg.“Fólk lifir á dramatík annarraKolfinna vill ekki tjá sig um það hvort fleiri breytinga séu að vænta innan herbúða RVKDTR. „Fólk lifir á dramatík annarra. Ég held að fólk ætti bara að drífa sig í leikhús, í bíó eða lesa góða bók. RVKDTR eru tæplega 20 manneskjur og þar af leiðandi eru ólíkar skoðanir á hlutunum í gangi. Ólík gildi og þar af leiðandi ólík sköpun. Við skiptumst stundum á að vinna þrjár saman og aðrar tvær annars staðar. Þá gerist eitthvað mjög ólíkt. Ég sem til dæmis ekki sama lag með Blæ eins og ég sem með Steiney sem dæmi. Það er aldrei þannig að ein okkar geti talað fyrir allan hópinn. Það virðist vera tilhneiging hjá fólki að ef ein gerir lag um kynferðisofbeldi þá sé allir hópurinn orðinn að Stígamótum. Ef ein er með hár undir höndunum þá séum við það allar. Ég fer í vax og skammast mín ekkert fyrir það. Það eru ekkert allar loðnar í Reykjavíkurdætrum, bara sumar.“ Einnig staðfestir Kolfinna að RVKDTR séu að ganga til samstarf við nýjan umboðsmann. Hér fyrir neðan má svo lesa færslu Vigdísar í heild sinni.
Tónlist Tengdar fréttir Reykjavíkurdætur gefa út plötu og opna nýja heimasíðu Reykjavíkurdætur hafa ákveðið að gefa út plötu og ætlar sveitin að framleiða hana sjálfar. Þær hafa nú hafið söfnun á Karolina Fund til að fjármagna útgáfu á nýju plötunni. 3. mars 2016 15:30 Íslenskt "Girl power“ í London Um 15 íslenskar popp-stúlkur lögðu mark sitt á tónlistarsenuna í London um helgina. 14. mars 2016 11:04 Mest lesið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fleiri fréttir Ísland á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision Lét sig dreyma um Eurovision á Húsavík Björk mætir á stóra skjáinn Gítarleikari Whitesnake fallinn frá Upprunalegt handrit „Mr. Tambourine man“ seldist á 70 milljónir Heill hljóðheimur Hildar fer afturábak Frumsýning á Vísi: Ferðalag um næturhimininn með Kára Egils Troðfylltu Iðnó: „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu“ Bestu vinir sem fá að vinna við það sem þeir elska Bríet, Valdimar og Elín Hall meðal hæstu styrkhafa Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni Una Torfa og Jón Jónsson frumfluttu lag í beinni Frumsýning á Vísi: Hálka lífsins með Nýdönsk Nýdönsk á toppnum 2024 Sjá meira
Reykjavíkurdætur gefa út plötu og opna nýja heimasíðu Reykjavíkurdætur hafa ákveðið að gefa út plötu og ætlar sveitin að framleiða hana sjálfar. Þær hafa nú hafið söfnun á Karolina Fund til að fjármagna útgáfu á nýju plötunni. 3. mars 2016 15:30
Íslenskt "Girl power“ í London Um 15 íslenskar popp-stúlkur lögðu mark sitt á tónlistarsenuna í London um helgina. 14. mars 2016 11:04