„Ég hef verið að taka upp plötu sem kemur út eftir sirka mánuð eða svo. Þannig að við erum bara búin að vera í því svolítið mikið, síðan hef ég verið í alls konar öðrum verkefnum, var t.d. að gera tónlist fyrir kvikmyndina Bakk í fyrra og annað. Þannig að ég setti live spilamennskuna svolítið til hliðar á meðan. En við ætlum að fara á fullt núna í sumar og kynna nýju plötuna. Verðum á Solstice og á Sumarmölinni á Drangsnesi núna um helgina og Innipúkanum líka,“ segir Snorri þegar hann er inntur eftir því hvað í ósköpunum hann hafi verið að bralla allan þennan tíma.
Aðspurður segir Snorri að nýja platan fái mest öll að rúlla þarna á tónleikunum og í bland við hana muni þau taka gömul og góð lög eins og gengur svo allir fái eitthvað fyrir sinn snúð. Með Snorra verður heljarinnar band sem í eru nánast allir tónlistarmenn landsins.
„Við erum sjö í bandinu, þannig að þetta verður svona stór epic-band útgáfa af okkur. Þetta eru Valdimar Guðmundsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson sem er í Hjaltalín og Hjörtur Ingvi úr Hjaltalín líka. Síðan er það Silla – Mr. Silla. Þá er það Örn Eldjárn og Magnús Elíasen Tryggvason trommari.“
Aðdáendur fengu smá forskot á sæluna í gær þegar frá Snorra kom spánnýtt lag og myndband – það var lagið Einsemd af nýju plötunni sem varð fyrir valinu.
„Á bak við þetta er leikhópur sem heitir Kriðpleir og strákur sem heitir Óskar Kristinn Ernisson. Þeir gerðu þetta fyrir mig í síðasta mánuði og við náðum að henda þessu strax saman.“
Snorri og band verða á Kexi hosteli í kvöld klukkan 21.00 og það er frítt inn.