Lífið

Eitt ár af rannsóknarvinnu leiddi í ljós að Jon Haugen lék ljóta nakta gaurinn í Friends

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ross var stundum í samskiptum við ljóta nakta gaurinn.
Ross var stundum í samskiptum við ljóta nakta gaurinn.
Gamanþættirnir Friends njóta ennþá gríðarlegrar vinsældra og horfa milljónir manna á þættina daglega.

Friends voru framleiddir á árunum 1994-2004 og þekkja Íslendingar þættina vel. Það þekkja margir þá list að vitna í Friends og sumir hverjir muna nánast orðrétt hvernig hver einasti þáttur fór fram.

Einn eftirminnilegur karakter úr þáttunum var ljóti nakti gaurinn sem bjó á móti Monicu og Rachel en aldrei sást í andlitið á honum í þáttunum.

Vefsíðan Huffington Post hefur nú uppljóstrað því hver sé maðurinn á bakvið þennan skemmtilega karakter sem setti heldur betur svip sinn á þáttinn.

Leikarinn Mike Hagerty hefur oft verið bendlaður við hlutverkið og kemur hans nafn oft upp þegar leitað er á veraldarvefnum. Huffington Post hafði samband við Hagerty sem staðfesti að hann hefði ekki farið með hlutverkið.

Blaðamaðurinn Todd Van Luling lagðist í mikla rannsóknarvinnu og eftir mikla leit fann hann manninn sem leikur ljóta nakta manninn í Friends. Eftir eins árs vinnu fann blaðamaðurinn loksins manninn sjálfan, en hann heitir Jon Haugen og má sjá mynd af honum hér að neðan.

Jon Haugen.Mynd/huffington post
Haugen samþykkti að veita Huffington Post ítarlegt viðtal.

„Það er aðeins einn maður sem fór með hlutverk ljóta nakta mannsins og það er ég,“ segir Haugen í samtali við blaðamanninn þann 16. maí.

„Ástæðan fyrir því að ég hef aldrei stigið fram var að Warner Brothers vildi halda þessu leyndu í einhvern tíma. Mér datt aldrei í hug að ég myndi fá símtal frá þeim og beðinn um að leika karakterinn aftur. Þetta var einhver skemmtilegasti tími ævi minnar.“

Eitt frægasta atriði í þáttunum snéri að ljóta nakta manninum en þá höfðu vinirnir útbúið langt spjót til að pota í hann, þar sem þeir héldu að nakti nágranninn væri dáinn.

„Þetta var ekkert sársaukafullt, það erfiðasta við það atriði var að halda niðri í mér andanum allan tímann. Við tókum atriði upp um miðja nótt og ég var orðinn mjög þreyttur eftir langan dag.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.