Andri Þór skrefi nær opna breska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júní 2016 22:19 Andri Þór Björnsson Mynd/Golfsamband Íslands
GR-kylfingurinn Andri Þór Björnsson komst í gegnum fyrsta stig úrtökumótaraðar fyrir Opna breska meistaramótið sem fram fer á Troon vellinum í júlí. Andri Þór sigraði á úrtökumóti sem fram fór í dag á Panmure vellinum í Skotlandi. Golfsamandið sagði frá þessum frábæra árangri Andra Þórs á heimasíðu sinni í kvöld. Andri Þór lék á 70 höggum eða pari vallar og deildi hann efsta sætinu með Alasdair McDougall frá Skotlandi. Aðeins fjórir kylfingar komust áfram af þessum velli en alls fóru tólf slík mót víðsvegar um Bretlandseyjar. Andri fær nú annað tækifæri á öðru úrtökumóti fyrir risamótið. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék einnig á þessum velli en hann lék á 75 höggum eða +5 og komst ekki áfram. Þórður Rafn Gissurarson úr GR var einu höggi frá því að komast áfram á úrtökumótinu sem hann tók þátt í. Þórður lék á Burhil vellinum á Englandi og þar komust átta efstu kylfingarnir áfram. Þórður var einu höggi frá því sæti en hann lék á +1 eða 73 höggum. Lokaúrtökumótið sem Andri Þór mun leika á fer fram á fjórum völlum samtímis þann 28. Júní. Þar tryggja þrjú efstu sætin á hverjum keppnisvelli þátttökurétt á Troon og alls komast því 12 kylfingar í gegnum þessa síu.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira