Þá sagði hún að hún elskaði sinn eigin líkama og hún hefði ekki komist svona langt í bransanum ef að tískuhúsin og annað fólk bæri ekki líka virðingu fyrir honum.
Núna er hún hinsvegar að berjast frá hinni hliðinni. Gigi hefur auðsjáanlega misst nokkur kíló á seinustu mánuðum en það þarf ekki endilega að vera slæmur hlutur. Hún er mjög líkamlega virk og er dugleg að stunda líkamsrækt og box. Háværu og neikvæðuraddirnar láta það þó ekki stoppa sig og segja hana vera orðna alltof granna til þess að vera fyrirmynd fyrir ungar stúlkur.
Hún svaraði einum gagnrýnanda sínum í Instagram athugasemd eins og má sjá á neðri myndinni hér fyrir neðan. Þar segir hún að líkami hennar sé enn að þroskast og þó svo að hann sé ekki sá sami og fyrir tveimur árum að þá elski hún hann ennþá.
Gigi's response to someone who said she's going against her word and losing weight to fit in! pic.twitter.com/b4f2WNsfCT
— Gigi Hadid News (@GigiHadidsNews) August 15, 2016