Herbergi í 101 til sölu á 20 milljónir Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. ágúst 2016 10:29 Íbúðarherbergið er 21,9 fermetrar og kostar tæpar 20 milljónir króna. vísir
Það kennir ýmissa grasa á fasteignavef Vísis nú sem endranær en í gær setti fasteignasalan Lind íbúðarherbergi í kjallara að Ránargötu 4 í sölu. Herbergið er 21,9 fermetrar samkvæmt auglýsingunni á fasteignavefnum og er ásett verð 19,9 milljónir króna, eða rúmlega 900 þúsund krónur á fermetrann. Búið er að skipta um glugga og gler í herberginu og þá var skólp nýlega endurnýjað, nýtt rafmagn var lagt og skipt um ofnalagnir, að því er kemur fram í auglýsingunni. Í herberginu er harðparket á gólfi og eldhúskrókur þar sem er lítil innrétting og hillur. Þá er samkvæmt lýsingu herbergisins lítil geymsla undir súð í því. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar er upphengt salerni og sturta. Þvottahús er svo sameiginlegt þar sem hver íbúð er með sína vél og hjóla-og vagnageymsla er í sameign. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr herberginu en nánari upplýsingar má nálgast hér.Eldhúskrókur er í herberginu.mynd/lind fasteignasalaUpphengt klósett er á baðherberginu og sturta.mynd/lind fasteignasalaHerbergið er 21,9 fermetrar.mynd/lind fasteignasala
Hús og heimili Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Fleiri fréttir „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Sjá meira