Bjarni: Bara einn sigurvegari í úrslitaleik Ingvi Þór Sæmundsson á Laugardalsvelli skrifar 13. ágúst 2016 19:01 Bjarni stjórnaði ÍBV í þriðja sinn í bikarúrslitum í dag. vísir/ernir
Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, sagði að bikarúrslitaleikurinn gegn Val hafi tapast í fyrri hálfleik. Valsmenn byrjuðu leikinn af fítonskrafti, voru komnir í 2-0 eftir 20 mínútur og eftir það var róðurinn þungur fyrir Eyjamenn. „Fyrri hálfleikurinn var slæmur, sérstaklega byrjunin á leiknum. Það vantaði alla baráttu og kraft í okkur og þennan anda sem hefur verið í bikarnum,“ sagði Bjarni í samtali við Tómas Þór Þórðarson eftir leik. „Ég get ekki gefið neina skýringu á því. Seinni hálfleikurinn var ágætur af okkar hálfu en við fórum alltof seint í gang. Heilt yfir voru Valsarnir betri en það var alveg óþarfi að gefa þeim þetta í byrjun.“ Leikur Eyjamanna skánaði í seinni hálfleik en það þurfti miklu meira til að ógna forystu Valsmanna. „Við náðum ekki að finna glufu á þeim fyrr en aðeins í lokin. Við börðumst þó allavega fyrir þessu í seinni hálfleik en það dugði ekki til,“ sagði Bjarni. Hann vonast til að þessi árangur, að komast í bikarúrslit, sé byrjunin á einhverju meira hjá ÍBV. „Vonandi gerist það. Auðvitað vorum við ánægðir að komast í úrslitin en þú veist að það er bara einn sigurvegari í úrslitaleik,“ sagði Bjarni að endingu.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Ólafur: Frábært að fá fyrsta markið snemma Ólafur Jóhannesson vann sinn þriðja bikarúrslitaleik í röð þegar Valur bar sigurorð af ÍBV, 2-0, á Laugaradalsvellinum í dag. 13. ágúst 2016 18:23 Sigurður Egill: Bjuggum að reynslunni frá því í fyrra Sigurður Egill Lárusson var hetja Vals þegar liðið tryggði sér sinn 11. bikarmeistaratitil í sögu félagsins með 2-0 sigri á ÍBV í dag. 13. ágúst 2016 18:14 Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Fótbolti „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Enski boltinn Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Enski boltinn Fleiri fréttir Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sjá meira
Ólafur: Frábært að fá fyrsta markið snemma Ólafur Jóhannesson vann sinn þriðja bikarúrslitaleik í röð þegar Valur bar sigurorð af ÍBV, 2-0, á Laugaradalsvellinum í dag. 13. ágúst 2016 18:23
Sigurður Egill: Bjuggum að reynslunni frá því í fyrra Sigurður Egill Lárusson var hetja Vals þegar liðið tryggði sér sinn 11. bikarmeistaratitil í sögu félagsins með 2-0 sigri á ÍBV í dag. 13. ágúst 2016 18:14