„Báðir leikirnir hafa verið tiltölulega sannfærandi hjá okkur. Við vorum sterkari í báðum leikjunum en auðvitað hefði þetta getað á einhverjum tímapunkti hrokkið í hina áttina. Við sáum samt að Pólverjarnir voru svolítið vankaðir eftir tapið í fyrsta leik,“ sagði Dagur eftir leikinn sem þýska liðið vann 32-29. Pólverjar hafa nú tapað á móti Brasilíu og Þýskalandi í fyrstu tveimur leikjum sínum.
„Pólverjarnir komu inn mjög grimmir og þetta var líkamlega erfiður leikur. Við héldum vel sjó og við erum með líkamlega sterkt lið á þessum leikum. Ég er með þunga og stóra menn og þeir héldu gegn því. Við náðum svo að spila aðeins hraðari bolta og vorum aðeins beittari í okkar aðgerðum heldur en Pólverjarnir,“ sagði Dagur.
Þýska liðið vann sjö síðustu leiki sína á Evrópumótinu í janúar og Dagur hefur náð að kalla fram sömu liðsheild og sömu stemningu nú á Ólympíuleikunum tæpum átta mánuðum síðar. Sigrarnir á stórmótum eru orðnir níu í röð eða allt frá því að liðið tapaði fyrir Spáni í fyrsta leik á HM í Póllandi í ársbyrjun.
Spila hvað eftir annað 7 á móti 6

Hann er farinn að taka markvörðinn sinn út við allar kringumstæður þegar hann telur þess þurfa. Í lok leiksins í gær spiluðu Þjóðverjar hvað eftir annað 7 á móti 6 í sókninni. Sundum gekk það fullkomlega upp en fórnarkostnaður var líka nokkur auðveld pólsk mörk í tómt markið.
„Ég notaði aukamanninn síðustu fimmtán mínúturnar því mér fannst vera komið smá hökt í sóknarleikinn. Ég vildi aðeins breyta tempóinu,“ sagði Dagur en við hvaða kringumstæður notar hann þetta útspil?
„Það er bara þegar maður hefur á tilfinningunni að liðið þurfi smá hjálp við það að breyta rytmanum. Við gerum þetta þegar við erum færri, þegar við erum fleiri og svo þegar við á,“ segir Dagur sem telur sig ekki vera lengra kominn með þessa leikaðferð en aðrir þjálfarar.
„Alls ekki. Við erum á svipuðu róli og önnur lið. Það eru einhverjir þjálfarar sem hafa ekkert notað þetta en það er frekar undantekning frekar en hitt,“ sagði Dagur en kollegi hans í pólska liðinu, Talant Duyshebaev, notaði þetta til dæmis aldrei í leiknum.
Bara eitthvað þjálfarastress
Dagur virtist eiga mótspil við öllum útspilunum hjá Talant og sigurinn var sannfærandi. Það er líka mikil breidd í þýska liðinu og þrír leikmenn voru til dæmis markahæstir með fimm mörk í sigrinum á Póllandi.
„Ég er mjög ánægður með þessa byrjun og við virkum betri heldur en ég átti von á miðað við síðustu vikurnar á æfingunum, þá var ég skeptískur. Ég talaði líka við Gumma Gumm og hann var líka skeptískur með sína menn. Ætli það sé bara ekki eitthvert þjálfarastress,“ sagði Dagur brosandi.
„Það er gott að vera búinn að taka aðeins hrollinn úr mönnum. Það er voða hættulegt að taka fótinn af bensíngjöfinni og ég held að við ættum að halda sjó og slípa okkar leik áfram,“ sagði Dagur að lokum.