Axel og Ragnhildur stigameistarar á Eimskipsmótaröðinni Anton Ingi Leifsson skrifar 21. ágúst 2016 18:37 Axel fagnar sigrinum í dag. vísir/golf.is
Axel Bóasson, GK, og Saga Traustadóttir, GR, stóðu uppi sem sigurvegarar á Securitas-mótinu sem er hluti af Eimskiptsmótaröðinni, en leikið var í Grafarholti. Axel spilaði á 70 höggum í dag, en hann spilaði samtals á 204 höggum eða níu undir pari. Næstur kom Birgir Leifur Hafþórsson á sjö höggum undir pari og í þriðja sæti var Haraldur Franklín Magnús á sex undir pari. Með sigrinum tryggir Axel sér stigameistaratititlinn á Eimskipsmótaröðinni og fær því 750 þúsund krónur í verðlaunafé fyrir árangur sinn. Hafnfirðingurinn er að vinna þetta í annað skiptið. Í kvennaflokki stóð Saga uppi sem sigurvegari í Grafarholti en hún lék á átta yfir pari. Ragnhildur Kristinsdóttir og Nína Björk Geirsdóttir voru jafnar í öðru sæti á níu yfir pari. Ragnhildur Kristinsdóttir er því stigameistari 2016, en þetta er í fyrsta skipti sem Ragnhildur stendur uppi sem stigameistari.
Golf Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira