Bætti vallarmetið og blandaði sér í toppbaráttuna Kristinn Páll Teitsson skrifar 10. september 2016 11:15 Dustin átti frábæran dag á golfvellinum í gær. Vísir/Getty
Bandaríski kylfingurinn Dustin Johnson setti nýtt vallarmet á öðrum leikdegi BMW-meistaramótsins í golfi í Bandaríkjunum í gær er hann kom í hús á níu höggum undir pari. Dustin sem deilir forskotinu ásamt landa sínum, Robert Castro, á fjórtán höggum undir pari með þriggja högga forskot á Paul Casey. Fékk hann alls tvo erni og fimm fugla og lék skollalaus á öðrum leikdegi eftir að hafa fengið tvo skolla á fyrsta hring. Castro lék annan hringinn í röð á sjö höggum undir pari en hann fékk fimm fugla á fyrstu níu holunum. Þriðji dagur BMW-meistaramótsins sem fer fram í Indiana-fylki hefst klukkan 19:00 og er í beinni útsendingu á Golfstöðinni en þetta er næst síðasta mót Fedex-bikarsins.
Golf Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira