Chevy Camaro er fimmtugur Finnur Thorlacius skrifar 26. september 2016 13:18
Kraftabíllinn Chevrolet Camaro er nú orðinn miðaldra 50 ára bíll, en fyrstu eintök hans voru seld fyrir hálfri öld síðan og seldust hvorki meira né minna en 220.000 eintök af honum fyrstu 12 mánuðina. Tilkoma Chevrolet Camaro var svar GM við afar vinsælum sportbíl frá Ford, þ.e. Mustang. Allar götur síðan hafa báðir þessir bílar selst fremur vel, en þó ekki kringum síðustu aldamót. Hafa báðir bílarnir átt marga aðdáendur í heimalandinu Bandaríkjunum, sem og um allan heim. Fljótlega eftir tilkomu Camaro var hægt að kaupa keppnishæfa útgáfu bílsins sem fékk stafina Z/28 og var sá bíll strax afar sigursæll í Trans-Am mótaröðinni og vann nánast allar keppnir árin 1968 og 1969. Önnur kynslóð Camaro var kynntur árið 1970 og með henni gerðist það fyrst árið 1977 að Camaro varð söluhærri bíll en Ford Mustang. Þriðja kynslóðin kom svo 1982 og sú fjórða árið 1993 og með henni hófst hálfgert niðurlægingarskeið bílsins, því aðeins seldust 41.776 eintök af bílnum á síðasta ári þessarar kynslóðar, eða árið 2002. Það varð til þess að Chevrolet hætti framleiðslu Camaro tímabundið, eða til ársins 2010 en þá kom fimmta kynslóð bílsins út. Tók þá sala Camaro kipp og hefur hann selst í hátt í 90.000 eintökum á ári allar götur síðan. Í maí mánuði í fyrra kynnti Chevrolet svo sjöttu kynslóð Camaro og hófst sala hans seint í fyrra. Mest varð sala Camaro árið 1979, en þá seldust 282.571 eintök.
Bílar video Mest lesið Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Innlent Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás Innlent Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Erlent Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Innlent Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Erlent