Koeman brjálaður: „Þið eruð að drepa leikmanninn minn“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. október 2016 13:45 James McCarthy spilaði næstum allan leikinn bæði gegn Georgíu og Moldavíu. vísir/getty
Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton í ensku úrvalsdeildinni, vandar írska landsliðinu og þjálfara þess, Martin O'Neill, ekki kveðjurnar vegna meðferð Íranna á James McCarthy, leikmanni Everton, í síðustu landsleikjaviku. McCarthy spilaði fyrstu tvo leiki tímabilsins með Everton en hefur síðan ekki spilað vegna meiðsla í nára. Hann var engu að síður valinn í írska landsliðið sem mætti Georgíu og Moldavíu í síðustu landsleikjaviku. McCarthy byrjaði báða leikina þrátt fyrir að koma aftur úr meiðslum og spilaði 90 mínútur gegn Georgíu og 80 mínútur gegn Moldavíu. Þegar írski miðjumaðurinn sneri aftur til Everton sagði læknalið félagsins að Koeman gæti ekki notað McCarthy um helgina eða á næstunni því hann er algjörlega búinn eftir vikuna með Írlandi. „Þegar James kom aftur frá Írlandi voru skilaboðin frá læknaliðinu mínu að hann væri búinn að spila alltof mikið og nú erum það við sem þurfum að koma honum í lag,“ sagði Koeman á blaðamannafundi í dag. „Ég væri til í að sjá leikmanninn hugsa meira um Everton því það erum við sem borgum honum en auðvitað var James í erfiðri stöðu. Það er náttúrlega fáránlegt að hann spili 90 mínútur og svo 80 mínútur þremur dögum síðar.“ „Auðvitað er hann algjörlega búinn á því. Ég fer ekki svona með mína leikmenn því þá meiðast þeir bara aftur. Spilið honum í 45 mínútur eða 60 mínútur en ekki 95 mínútur og svo 80 nokkrum dögum síðar. Þið eruð að drepa leikmanninn minn,“ sagði Ronald Koeman.
Enski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira