Til samanburðar má geta þess að úrkoma í öllum október í fyrra í Reykjavík var 159,9 millimetrar og var það er um 86 prósent umfram meðalúrkomu áranna 1961 til 1990. Elín Björk segir að úrkomuákefðin aukist í nótt og verði svo fram undir hádegi á fimmtudag en það má segja að hálft landið sé undir; allt frá austanverðum Vatnajökli suður og norður að Ísafjarðardjúpi eins og sést á myndinni hér að neðan.

„Það hefur alveg verið í sumar svipuð úrkomuákefð en það var þá kannski bara í tvo til þrjá tíma,“ segir Elín Björk.
Mikill viðbúnaður er hjá lögreglu og Slysavarnafélaginu Landsbjörg vegna úrkomunnar og segir Jónas Guðmundsson hjá Landsbjörg að strax í hádeginu hafi allar aðgerðastjórnir félagsins verið látnar vita af veðurspánni.
„Við sögðum þeim sem sagt frá spánni og að þetta væri í raun einstakur viðburður þar sem við höfum ekki séð svona mikla uppsafnaða úrkomu í allmörg ár. Klukkan 14 tókum við síðan stöðufund með Almannavörnum og Veðurstofunni og eftir hann ákváðum við að senda tilkynningu til ferðaþjónustuaðila vegna veðursins. Það sem við gerum þegar eitthvað kemur svona snögglega upp er að við sendum sérstakt skjal og biðjum ferðaþjónustuna um að hengja þetta upp hjá sér. Svo látum við einnig vita í gegnum SafeTravel og upplýsingakerfið okkar sem við erum með um land allt,“ segir Jónas í samtali við Vísi.

En hvað eru mögulega margir ferðamenn sem þarf að ná til vegna veðursins?
„Við erum að horfa á 45 prósent aukningu í fjölda ferðamanna í september síðastliðnum frá árinu í fyrra svo það má gera ráð fyrir því að nú í október sé líka á milli 30 og 40 prósent aukning. Þannig að þetta eru einhverjar tugþúsundir ferðamanna sem eru núna á landinu og einhverjar þúsundir á Suðurlandi en hvað margir eru nákvæmlega á hálendinu er erfitt að segja til um,“ segir Jónas.
Viðvörun Almannavarna vegna úrkomunnar má nálgast hér.
Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir að það sé einmitt hálendið sem yfirvöld hafi mestar áhyggjur af. Mælst sé til þess að fólk sé ekki að fara inn í Þórsmörk og ekki á Fjallabaksleiðir en hann segir að mannvirki á láglendi, brýr og vegir ættu að standa veðrið af sér.
„Það er einhver smá ótti með að það muni koma talsvert vatn í Hvítá og niður undir Ölfusá þannig að við fylgjumst með því en ef að Hvítáin flæðir mikið þá er mögulegt að bæirnir Auðsholt muni lokast af. Það hjálpar að það er ekki frost og klaki en á móti kemur að grunnvatnsstaða er há og mikið vatn nú þegar í ám,“ segir Sveinn.
Yfirvöld beina því til almennings að passa niðurföll, sópa laufi frá og annað slíkt svo rigningin komist leiðar sinnar í gegnum frárennslikerfið.
Hér fyrir neðan má fylgjast með úrhellinu á gagnvirku spákorti.