Í gegnum tíðina hefur H&M farið í samstarf við fræg og virt tískuhús. Í fyrra var það Balmain og svo Alexander Wang á undan því. Þau hafa einnig unnið með Versace, Lanvin og Sonia Rykiel. Línurnar hafa undantekningarlaust slegið í gegn hjá aðdáendum verslunarkeðjunnar og hafa iðulega myndast langar raðir fyrir utan stærstu verslanir H&M um allan heim.
Því miður fá þeir sem eru staddir á Íslandi ekki tækifæri til þess að kaupa línuna. Hægt er þó að halda í vonina um að önnur samstörf fyrirtækisins í framtíðinni verði seld í versluninni sem opnar á hér á landi á næsta ári.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá nokkur dress. Hægt er að sjá línuna í heild sinni hér.




