Stjórnarandstaðan mun kanna möguleikann á stjórnarmyndun nái hún til þess meirihluta Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. október 2016 11:49 Frá fundi flokkanna á sunnudag. visir/stefán
Fundi stjórnarandstöðuflokkanna sem hófst klukkan 10.30 í morgun lauk núna rúmlega hálftólf. Í samhljóða yfirlýsingu sem lesa má meðal annars á Facebook-síðu Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna og Oddnýjar Harðardóttur formanns Samfylkingarinnar segir að flokkarnir fjórir, Píratar, Vinstri græn, Samfylking og Björt framtíð, telji fulla ástæðu til þess að kanna möguleika á myndun meirihlutastjórnar fái flokkarnir til þess umboð í komandi kosningum. Birgitta Jónsdóttir hjá Pírötum og Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar birtu sams konar yfirlýsingu á Facebook-síðum sínu. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan en athygli vekur að rétt eftir fundinn boðaði Björt framtíð til blaðamannafundar sem hefst klukkan 14.Í dag hittust formenn og talsmenn Pírata, Vinstri Grænna, Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar á ný. Þessir flokkar hafa unnið vel saman í stjórnarandstöðu á þessu kjörtímabili sem er óvenju stutt vegna afhjúpana Panama-skjalanna sem sýndu tengsl ríkisstjórnarflokkanna við aflandsfélög í skattaskjólum.Nú er rétti tíminn til að ráðast í þau verk sem þjóðin kallar eftir, uppbyggingu innviða og skapa traustan og stöðugan grunn fyrir aukin lífsgæði. Það þarf nýja forgangsröðun og sýn á samfélagið. Til að varanlegur stöðugleiki komist á, verður að ástunda ábyrga efnahagsstjórn en jafnframt vinna að félagslegum stöðugleika. Að öðrum kosti næst ekki sátt í samfélaginu að loknum kosningum.Þörf er á betri vinnubrögðum sem byggjast á fagmennsku, samvinnu og gagnsæi. Vanda þarf til verka og innleiða kerfisbreytingar skref fyrir skref.Við höfum nú á tveimur fundum skoðað kosningaáherslur flokkanna og finnum mikinn samhljóm. Við teljum samstarf þessara flokka vera skýran valkost við núverandi stjórnarflokka sem getur skapað ný tækifæri fyrir íslenskt samfélag.Á grundvelli þessa teljum við fulla ástæðu til að kanna möguleika á myndun meirihlutastjórnar ef þessir flokkar fá til þess umboð í komandi kosningum. Flokkarnir hittust einnig síðastliðinn sunnudag en þá var vika liðin frá því að Píratar sendu flokkunum þremur, ásamt Viðreisn, bréf þar sem þeim var boðið til viðræðna um samstarf að loknum kosningum. Viðreisn tók ekki boðinu en hinir flokkarnir þrír gerðu það. Í yfirlýsingu Pírata sem þeir sendu frá sér þann 16. október sagði meðal annars: „Sú hefð hefur skapast í íslenskum stjórnmálum að loforð eru einatt svikin eftir kosningar og bera menn fyrir sig „pólitískum ómöguleika“, eins og frægt er orðið. Hefðin er sú, að stjórnmálaflokkar sem mynda ríkisstjórnir á Íslandi skýla sér bakvið málamiðlanir í stjórnarmyndun. Þannig tekst þeim ítrekað að svíkja kjósendur sína,“ segir í yfirlýsingunni. „Við Píratar viljum koma í veg fyrir pólitískan ómöguleika. Við viljum kerfisbreytingar. Við ætlum ekki að blekkja kjósendur. Við munum ekki taka þátt í ríkisstjórnarsamstarfi með þeim flokkum sem ekki geta skuldbundið sig til ákveðinna verka fyrir kosningar.“ Ekki verður annað skilið af yfirlýsingunni sem formenn VG og Samfylkingar sendu frá sér en að enginn formlegur sáttmáli eða samstarfssamningur liggi fyrir, en skýr vilji er þó til samstarfs hjá flokkunum fjórum.
Kosningar 2016 Tengdar fréttir Eru ekki í stjórnarmyndunarviðræðum Fyrirsögninni á fundinum hefur nú verið breytt á vefsíðu Pírata en nú er fundurinn kallaður „Píratar boða til formlegra viðræðna um samstarf“. 19. október 2016 06:00 Vinstrimiðjustjórn er líklegust Núverandi minnihluti hefur nær allur útilokað samvinnu við Sjálfstæðisflokk eftir kosningar. Píratar segjast einnig ekki vilja vinna með Framsókn. Óttarr Proppé segir minnihlutann hafa unnið saman allt kjörtímabilið 19. október 2016 06:00 Katrín Jakobsdóttir gæti orðið næsti forsætisráðherra Píratar, Vinstri Græn, Björt Framtíð og Samfylkingin ætla að funda á morgun um hugsanlegt stjórnarsamstarf nái þau nægilega mörgum atvkæðum á kjördag. Til greina kemur að Katrínu Jakobsdóttur verði boðið forsætisráðherra stóllinn. 22. október 2016 10:28 Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Sjá meira
Eru ekki í stjórnarmyndunarviðræðum Fyrirsögninni á fundinum hefur nú verið breytt á vefsíðu Pírata en nú er fundurinn kallaður „Píratar boða til formlegra viðræðna um samstarf“. 19. október 2016 06:00
Vinstrimiðjustjórn er líklegust Núverandi minnihluti hefur nær allur útilokað samvinnu við Sjálfstæðisflokk eftir kosningar. Píratar segjast einnig ekki vilja vinna með Framsókn. Óttarr Proppé segir minnihlutann hafa unnið saman allt kjörtímabilið 19. október 2016 06:00
Katrín Jakobsdóttir gæti orðið næsti forsætisráðherra Píratar, Vinstri Græn, Björt Framtíð og Samfylkingin ætla að funda á morgun um hugsanlegt stjórnarsamstarf nái þau nægilega mörgum atvkæðum á kjördag. Til greina kemur að Katrínu Jakobsdóttur verði boðið forsætisráðherra stóllinn. 22. október 2016 10:28