Biggi á Airwaves: „Pabbi, er Emmsjé Gauti mannæta?“ Birgir Örn Steinarsson skrifar 3. nóvember 2016 13:45 Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus, deilir Iceland Airwaves upplifun sinni með lesendum Vísis á meðan á tónlistarhátíðinni stendur.
Við dóttir mín erum á þeytingi í gegnum rigninguna í Vesturbænum. Það er þegar orðið dimmt enda klukkan er að verða sex. Uppáhaldið okkar, Emmsjé Gauti, er við það að hefja fyrstu off venue tónleika sína á þessari Airwaveshátíð á Kaffi Vest. Þetta er í fyrsta skiptið sem dóttir mín fær að bera goðið sitt augum en ég hef áður séð hann á tónleikum, fyrir fimm árum. Það var á Bestu útihátíðinni 2011, þegar Emmsjé var bæði kjaftforari og hárprúðari. Þá var ég að vinna sem sviðsstjóri á hátíðinni. Töluverð vandræði höfðu verið með Gauta sem þá var algjörlega óþekktur. Hann hagaði sér samt sem mesta stjarnan á svæðinu. Kvartaði sárann yfir því að vera of framarlega á dagskránni og var með kjaft. Eigendur hátíðarinnar voru búnir að nóg og höfðu ákveðið að láta henda honum út af svæðinu með fússi. Ég náði að tala þá til og Gauti fékk að koma fram. Er þetta ekki það sem heitir að vera LIT? Eða er þetta WOKE? Við erum ekki alveg klár á þessu en @emmsjegauti er amk geggjaður! #airwaves16 pic.twitter.com/nknOUZ60FO— Kaffihús Vesturbæjar (@kaffivest) November 2, 2016 Ég hef aldrei sagt honum frá því og ég efast um að hann viti hvað hann komst nálægt því þann daginn að vera borinn út af svæðinu af gæslunni. Það er óhætt að segja að drengurinn var með Rugluna á háu stigi. Ruglan er þegar hugmyndir um eigið ágæti eru úr samhengi við alheiminn.Á leiðinni á tónleikana hitar dóttir mín upp með því að syngja textann við uppáhalds lagið hennar, Silfurskotta.„Má ég smakka þetta skinn?,” syngur hún gallalaust. Snýr sér svo að mér og spyr. „Pabbi, er Emmsjé Gauti mannæta, eða hvað? Af hverju er hann að éta skinn?“Hún er sjö ára, þannig að ég er ekkert sérstaklega spenntur að útskýra þetta fyrir henni. Ég hrist hausinn og þykist ekkert skilja. Hún heldur áfram með textann.„Lærin snerta kinnarnar – tungan….“ Það kemur undarlegur svipur á dóttur mina. „Ööö…. Pabbi. Ég held að ég skilji þetta núna. Vil ekki tala um það… þetta er dónalegt.“ Ég þegi og labba áfram. Takk Gauti.Emmsjé Gauti spilaði fyrir fólk á öllum aldri í gær.Mynd/Edda HafsteinsdóttirÞegar við komum inn er troðið á Kaffi Vest. Eftir fyrsta lagið fer Gauti beint upp á borð þar sem hann er það sem eftir er af gigginu. Þarna inni er fólk á öllum aldri. Alveg frá 2 ára upp í 60. Allir eru skælbrosandi. Bæði nafntogaðir og meira áhugaverðir. Gauti keyrir í hvern slagarann á fætur öðru. Krakkarnir syngja með og hinir fullorðnu þykjast ekki kunna textann þar sem nálægðin við Gauta er gífurleg. Krakkarnir „gilla á sér bakið“ (það má alveg einhver útskýra það fyrir mér hvað það þýðir) og öskra „upp með hendur moðerfokker!“ og elska það. Gauti horfir í augun á þeim, gefur þeim fimmur og er fagmaður fyrir allan peninginn. Eða… nei, hann er að gefa vinnuna sína enda frítt inn.„Þið megið alveg kaupa mörjendæs þarna úti horni,“ segir Gauti og bendir á félaga sinn sem er að selja derhúfur, boli, geisladiska og vínylplötur. Von er á Emmsjé Gauta dótakallinum í lok nóvember.Hilmar Þór Guðmundsson var meðal gesta á Kaffi Vest í gær og tók þessa flottu mynd að neðan. What a performance by rapper @emmsjegauti @kaffihusvesturbaejar on @icelandairwaves #icelandairwaves #english #forthetourists A photo posted by Hilmar Þór (@hilmartor) on Nov 2, 2016 at 12:50pm PDT „Það væri fínt ef þið mynduð kaupa eitthvað. Ég er svo blankur út af því að þið eruð alltaf að dánlóda öllu. Ég á dóttur og hef ekki átt efni á bleyjum í margar vikur.“Allir hlæja.„Ég hef verið að vefja hana inn í handklæði til þess að redda mér.“Allir hlæja meira. Ef þetta væri einhver annars staðar á Íslandi og stjarna á stærð við Emmsjé Gauta myndi kasta svona fram myndi ég halda að hann væri að grínast. Gauti framleiðir allt sjálfur, dreifir öllu sjálfur, selur allt sjálfur og er nær algjörlega sjálfstæður. Hann lætur Herbert Guðmundsson líta út eins og viðvaning.Emmsjé Gauti tróð svo upp í Hörpu í gærkvöldi og var stemningin afar góð.Vísir/Andri MarinóMiðað við hversu illa íslenski tónlistarbransinn verðlaunar stjörnur sínar, þá kæmi mér ekkert á óvart að það komi dagar þar sem Gauti á ekki fyrir bleyjum.Þakið ætlar að springa af húsinu þegar Gauti tekur Reykjavík, Strákarnir og Silfurskotta.„Góðir gestir… má ég kynna hingað á Kaffi Vest… Aron Can!“ Unglingsstelpurnar fá næstum því kast af geðshræringu. Það er eins og Bítlarnir séu að mæta. Þær horfa í kringum sig, en hvergi er neinn Aron Can að finna.„Djók,“ segir Gauti og tekur viðlagið við Silfurskottuna sjálfur.Eftir giggið gefur Gauti sér tíma til þess að heilsa upp á krakka, gefa selfies og fimmur. Ef hann er enn með Rugluna, þá fer töluvert lítið fyrir henni. Enginn annar en Gauti hefur náð að sameina svona breitt bil tónlistaráhugamanna í ár. Í alvöru, 3 – 60 ára… það er virkilega vel gert. Það er ekki aftur snúið fyrir hann Gauta. Hann verður þekktur það sem eftir er. Hann er núna á toppnum og ef platan hans Vagg & Velta vinnur ekki plötu ársins á Íslensku tónlistarverðlaunum þá er eitthvað að kerfinu. Enginn annar hefur unnið jafn mikið fyrir því. Fimm stjörnu gigg!Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus, deilir Iceland Airwaves upplifun sinni með lesendum Vísis á meðan á tónlistarhátíðinni stendur.
Airwaves Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira