Bætir í snjókomuna seinnipartinn fyrir norðan og austan Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. nóvember 2016 08:04 Talsvert hefur snjóað á Akureyri í nótt og morgun og mun bæta í snjókomuna eftir því sem líður á daginn. Vísir/Auðunn
Það verður hvasst og úrkomusamt í allan dag á Norður-og Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands. Þá mun bæta í snjókomuna á þessum slóðum seinni partinn og mun að öllum líkindum ekki draga úr ofankomunni fyrr en í fyrramálið. Akstursskilyrði eru því erfið, sér í lagi á fjallvegum og er ófært um Þverárfjall, Breiðdalsheiði og Öxi. Talsvert hefur snjóað bæði fyrir norðan og austan í nótt og í morgun en fyrsta alvöru norðanátt vetrarins kom að landinu í gær. Stórhríð var þá á Norður-og Austurlandi en heldur hefur dregið úr vindi og nær stormviðvörun Veðurstofunnar nú aðeins til Suðausturlands þar sem búast má við meðalvindi yfir 20 metrum á sekúndu í mestallan dag.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga:Norðan 13-18 metrar á sekúndu í dag, en 18-23 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Snjókoma eða él norðan- og austanlands, en slydda eða rigning við ströndina í kvöld. Skýjað með köflum um landið sunnanvert og sums staðar lítilsháttar él.Norðan 10-15 á morgun og él eða slydduél fyrir norðan, en bjart syðra. Dregur meira úr vindi og úrkomu annað kvöld.Á laugardag:Norðan 10-15 metrar á sekúndu og éljagangur, en bjartviðri um landið sunnanvert. Lægir og styttir upp vestantil um kvöldið. Hiti kringum frostmark.Á sunnudag:Hæg breytileg átt og bjartviðri vestanlands. Norðvestan 8-13 um landið austanvert og dálítil él. Frost 1 til 9 stig, mest í innsveitum á Norðvesturlandi.Á mánudag:Hægviðri og léttskýjað, en norðvestan 5-10 norðaustanlands og svolítil él. Áfram kalt í veðri.Á þriðjudag:Suðlæg átt 3-8 og snjómugga, en slydda við sjóinn. Þurrt norðaustantil á landinu. Vægt frost, en frostlaust með suður- og vesturströndinni.Færð og aðstæður á vegum: Það er hálka og snjóþekja á vegum á Suðurlandi og skafrenningur á fjallvegum. Á Vesturlandi er víðast hálka eða snjóþekja. Ófært er á Bröttubrekku. Hálka og snjóþekja er á flestum vegum á Vestfjörðum. Ófært er á Klettshálsi og mjög hvasst. Bjarnarfjarðarháls er þungfær. Ófært er á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði, og eins úr Bjarnarfirði norður í Norðurfjörð. Það er snjókoma og skafrenningur á Norðurlandi, víða hvasst og sums staðar mjög blint. Lokað er um Þverárfjall en þævingur á Vatnsskarði. Hálka og skafrenninur er á Möðrudalsöræfum. Á Austurlandi er víðast snjóþekja eða hálka og éljagangur, Þæfingur er á Fjarðarheiði en þungfært og stórhríð er á Vatnsskarði eystra, ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi. Hálka, hálkublettir og mjög hvasst eru með suðausturströndinni.
Veður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira