Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 10. desember 10. desember 2016 09:00
Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á hverjum einasta degi fram að jólum. Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt. Hurðaskellir er hálfgerður galdrakarl, hann kann að spá í bolla. Hann veit næstum því allt um Skjóðu og hrífur hana með sér í dularfulla heima. Hún ákveður að beita sínum spádómsgáfum líka og býr til gogg sem spáir því hvað þú færð í jólagjöf. Horfðu á þáttinn og þá getur þú líka séð inn í framtíðina. Blaðið sem þú þarft að prenta út er hægt að finna inni á jolasveinar.is.Frekari upplýsingar má finna á Facebook-síðu jólasveinanna.
Jólafréttir Mest lesið Alltaf betra en í fyrra Jól Björgvin og félagar sungu inn jólin - myndir Jól Hrærður yfir viðtökunum Jól Leyndarmálinu ljóstrað upp Jólin Engar jólagjafir hjá Sálinni Jól Hátíðleiki nær hámarki í kirkjunni Jólin Margar gerðir af jóladiskum - verð frá 413 kr. 30% afsláttur. Jólin Súkkulaðikransatoppar Jólin Jólapakkar hrannast upp Jól Skoppa og Skrítla árita jóladagatalið í Kringlunni Jólin