Mótmæla fyrirhuguðum lokunum í miðbænum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. desember 2016 17:58 Miðbæjarfélagið mótmælir fyrirhuguðum lokunum í miðbænum og segir að borgaryfirvöld taki ekkert mark á athugasemdum rekstraraðila. Vísir/GVA
Miðbæjarfélagið, hagsmunafélag atvinnurekenda og eigenda atvinnuhúsnæðis í miðbæ Reykjavíkur mótmælir harðlega fyrirhuguðum lokunum á neðri hluta Skólavörðustígs og Laugavegar nú á aðventu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Sömu götum var einnig lokað í fyrra. Í tilkynningunni segir félagið að reynslan hafi sýnt að verslun dregst verulega saman þegar götunum er lokað, sér í lagi að vetrarlagi þegar allra veðra er von. Ekkert mark hafi verið tekið á ítrekuðum athugasemdum rekstaraðila og telur Miðbæjarfélagið að borgaryfirvöld skorti skilning á þörfum atvinnurekstrar í miðbænum. Félagið gagrýnir jafnframt orð Hjálmar Sveinssonar borgarfulltrúa um að mikil fólksfjölgun hafi orðið í miðborginni, en í tilkynningu félagsins segir að mun færri séu á ferli í miðbænum nú en fyrir nokkrum áratugum. Segir jafnframt í tilkynningunni að þegar Austurstræti hafi verið lokað á sínum tíma hafi verið þess skammt að bíða að öll verslun vestan við lokunina liði undir lok og að sama þróun hafi orðið á Laugavegi, að undanskilinni verslunum sem þjónusti ferðamenn. Telur félagið að öflug atvinnustarfsemi muni ekki ná að dafna í miðbænum nema með góðu aðgengi.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira