Handboltakappi ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2016 22:30 Heimir Örn í leik með Þrótti Vogum gegn Gróttu í Coca Cola bikarnum. vísir/hanna
Handboltakappinn Heimir Örn Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar. Hann tekur við starfinu af Ágústi Jenssyni. Heimir lék handbolta í fjölmörg ár. Hann hóf ferilinn með KA og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2002. Hann lék einnig með Val, Fylki, Stjörnunni, Akureyri, Hömrunum og Þrótti Vogum á ferlinum. Þá lék Heimir bæði í Noregi og Svíþjóð. Heimir lék 23 A-landsleiki fyrir Ísland og skoraði 14 mörk. Heimir var um tíma þjálfari Akureyrar og eftir að skórnir fóru á hilluna eftir tímabilið 2014-15 sneri hann sér að dómgæslu. Heimir myndar eitt fremsta dómarapar Íslands í dag ásamt Sigurði Hirti Þrastarsyni. „Þetta er starf sem ég er gríðarlega spenntur fyrir. Mér þykir mjög vænt um GA og vil leggja mitt af mörkum til að klúbburinn vaxi og dafni áfram. Ég tek við góðu búi frá fráfarandi framkvæmdastjóra og hlakka jafnframt til góðra samskipta og samstarfs við félaga, gesti og samstarfsaðila GA,“ segir Heimir í frétt á vef GA. Hann hefur störf 1. mars næstkomandi.
Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira