Nota ömmu sína og hennar einkamál í skáldskap Magnús Guðmundsson skrifar 19. janúar 2017 12:00 Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslensku, er á meðal fleiri fræðimanna sem taka þátt í hádegisspjalli um siðferði í listum á morgun. Visir/GVA
Undanfarin ár hafa mörkin milli veruleika og skáldskapar orðið æ óljósari í listalífi landsmanna. Í framhaldi af því hafa vaknað flóknar spurningar um hvort allt sé í raun leyfilegt eða hvort einhvers konar siðferðileg mörk verði og ætti að draga. Af þessu tilefni verður efnt til málþings í Árnagarði á morgun, föstudag kl. 12-13, undir yfirskriftinni Er allt leyfilegt í listum? – hádegisspjall um siðferði í listum. Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslensku, Guðrún Baldvinsdóttir bókmenntafræðingur, Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafræði, Hlín Agnarsdóttir leiklistargagnrýnandi, Rúnar Helgi Vignisson, dósent í ritlist, og Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ, reifa þessi mál frá ýmsum hliðum í stuttum innleggjum og síðan verður efnt til umræðna. Málstofustjóri verður Torfi Tulinius prófessor. Dagný Kristjánsdóttir, sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi málstofunnar, segir að málstofan sé fyrst og fremst ákveðin viðbrögð við umræðunni sem hefur geisað á netinu og allt um kring. Þessar umræður hafa verið mjög ástríðufullar og persónulegar, jafnvel stórorðar á köflum og okkur langar til þess í Háskólanum að bregðast aðeins við þessu. Að tala aðeins um þetta fyrirbæri, þessi fljótandi mörk á milli hins persónulega og pólitíska eða opinbera.“ Dagný segir að þetta hafi verið eins og einhvers konar tíska á síðustu árum. „Þetta er ekki bara hér, þetta er líka á Norðurlöndunum og víðar þar sem fólk hikar ekki við að nota ömmu sína og hennar einkamál í skáldskap. Viðkvæmustu hluti. Og þetta náttúrulega hefur sínar afleiðingar.“ Dagný bendir á að það hafi vissulega hlaupið mikill hiti í umræðurnar í tengslum við Gott fólk í Þjóðleikhúsinu fyrir skömmu en að það sé þó hvergi nærri eina dæmið. „Þetta kom líka upp í sambandi við Konan við 1000° og smá gusa í kringum Steinar Braga og Jón Gnarr ekki síður. Þetta hefur færst í aukana og spurningin er hvað er í gangi? Það er það sem okkur langar til þess að tala um án þess að grafa okkur ofan í einstök verk heldur reyna að draga skýrar línur. Við verðum þarna úr ólíkum áttum en öll með stutt innlegg því megináherslan verður á samræðu. Við viljum endilega fá viðbrögð og álit fólks en það þarf auðvitað að halda því á málefnalegum grunni.“ Eins og áður sagði verður málþingið í Árnagarði á morgun kl. 12 til 13 og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 19. janúar.
Menning Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira