Einar Karl en ekki sonur Eiðs Smára tryggði Val fyrsta sigurinn á árinu 2017 Óskar Ófegur Jónsson skrifar 16. janúar 2017 11:00 Valsmenn byrjuðu tímabilið á sigri. Vísir/Stefán
Það var Einar Karl Ingvarsson en ekki Sveinn Aron Guðjohnsen sem tryggði Valsmönnum þrjú stig í gærkvöldi en þetta var fyrsti leikur Hlíðarendaliðsins í Reykjavíkurmótinu í ár. Valsliðið vann þá 3-2 sigur á Þrótti í fyrsta leik liðanna í B-riðli Reykjavíkurmótsins en Fjölnir vann 1-0 sigur á Leikni í hinum leik B-riðilsins í gær. Einar Karl Ingvarsson skoraði sigurmarkið á 67. mínútu leiksins eftir að staðan hafði verið 2-2 í hálfleik. Vísir fór eftir leikskýrslu leiksins í morgun þegar við sögðum frá því að Sveinn Aron Guðjohnsen hafi skorað sigurmarkið. Einar Karl eða einhver tengdur Valsliðinu hefur væntanlega sent inn athugasemd því skýrslan á KSÍ hefur nú verið leiðrétt. Einar Karl Ingvarsson er nú skráður fyrir markinu. Öll hin fjögur mörk leiksins halda hinsvegar sinni skráningu eins og þegar skýrslan kom inn á ksi.is. Þróttarar komust tvisvar yfir í leiknum, fyrst kom Brynjar Jónasson Þrótturum í 1-0 á 4. mínútu og svo varð Haukur Páll Sigurðsson fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 41. mínútu. Danski framherjinn Nikolaj Andreas Hansen jafnaði í bæði skiptin, fyrst í 1-1 á 34. mínútu og svo í 2-2 á 44. mínútu. Einar Karl gerði síðan út um leikinn 23 mínútum fyrir leikslok. Þórir Guðjónsson skoraði eina markið í 1-0 sigri Fjölnis á Leikni en markið hans kom strax á þrettándu mínútu leiksins.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Sjá meira