Aflvélar fá Meyer umboðið 31. janúar 2017 15:30 Friðrik Ingi Friðriksson hjá Aflvélum við eina af vélunum frá Meyer en fyrirtækið tók nýverið við umboði fyrir þessar gæðavörur. Mynd/GVA
Aflvélar, Vesturhrauni 3 í Garðabæ, hafa fengið umboðið fyrir hinu þekkta bandaríska merki Meyer. Fyrirtækið afhenti nýlega Reykjavíkurflugvelli stærsta flugbrautarsóp landsins og hefur auk þess lagt í talsverða fjárfestingu til að auka gæði þjónustu sinnar. Aflvélar sérhæfa sig í sumar- og vetrartækjum sem fest eru á gröfur, vörubíla og önnur farartæki. Fyrirtækið hefur umboð fyrir fjölmörg gæðamerki á borð við Aebi-Schmidt, Sami og Pronar. Nýverið bættist ein fjöður enn í hattinn þegar Aflvélar fengu umboðið fyrir Meyer. „Meyer er þekkt bandarískt merki sem framleiðir snjótennur og saltdreifara framan á léttari ökutæki á borð við pallbíla og jeppa,“ lýsir Friðrik Ingi Friðriksson, eigandi Aflvéla. Hann segir merkið þekkt á Íslandi enda hafi tæki frá því verið í notkun hér í áratugi. „Menn hafa haft mjög góða reynslu af þessum tækjum sem notuð eru í minni verkefni,“ segir Friðrik Ingi en meðal þeirra sem nýta tæki frá Meyer eru Vegagerðin, ýmsir verktakar og bæjarfélög. „Við höfum fram til þessa fremur verið með stærri tæki svo þetta er mjög fín viðbót,“ segir Friðrik og bendir á vefsíðuna www.meyerproducts.com.Aflvélar afhentu nýlega Reykjavíkurflugvelli stærsta flugbrautarsóp landsins.Stærsti flugbrautarsópur landsins Aflvélar hafa selt flesta þá flugbrautarsópa sem eru í notkun á íslenskum flugvöllum. „Við vorum síðan að afgreiða mjög áhugavert tæki á dögunum en það er nýr flugbrautarsópur fyrir Reykjavíkurflugvöll. Þetta er stærsti flugbrautarsópur landsins sem er með bursta sem er 6,30 metrar á breidd.“ Friðrik Ingi lýsir því að venjulegir flugbrautarsópar séu dregnir af vörubílum. „Þessi sópur er hins vegar sambyggt tæki með liðstýringu þannig að hausinn hreyfist til hliðanna svipað og hjólaskófla. Þá er tönnin fremst og sópurinn fylgir á eftir. Þannig fær ökumaðurinn betra útsýni og á auðveldar með að stýra sópnum enda er hann miklu liprari í vinnslu.“ Sópurinn er líka afkastameiri en aðrir hefðbundnir sópar. „Þetta breytir miklu fyrir Reykjavíkurflugvöll. Sópurinn er það breiður að þeir geta sleppt heilli ferð á brautinni. Það sparar tíma og þar með peninga.“Bætt þjónusta Aflvélar hafa undanfarið lagt í mikla fjárfestingu til að bæta þjónustustig fyrirtækisins. „Við höfum stækkað mikið húsnæði okkar við Vesturhraun 3 í Garðabæ, og erum að setja upp alveg nýtt verkstæði. Aðstaðan er því miklu betri auk þess sem við höfum einnig bætt tækjakostinn til muna,“ lýsir hann. Friðrik Ingi segir þjónustuhlutann mikilvægan þátt í starfsemi Aflvéla. „Að vera með alla þjónustu innan fyrirtækisins breytir gríðarlega miklu fyrir okkur og kúnnann,“ segir hann en meðal viðskiptavina Aflvéla má nefna flugvelli landsins, Isavia, Vegagerðina, bæjarfélög og verktaka. Nánari upplýsingar má finna á www.aflvelar.is
Mest lesið Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Atvinnulíf „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Atvinnulíf Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Atvinnulíf Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Fleiri fréttir Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira