Gleðin ríkjandi en undirtónninn alvarlegri Ritstjórn skrifar 17. febrúar 2017 10:15 Mynd/Hörður Ásbjörnsson „
Það að dansa í hádeginu getur verið skrýtin tilhugsun en tilfinningin er æðisleg,“ segir Hanna Eiríksdóttir, herferðarstýra UN Women á Íslandi sem í fimmta sinn stendur fyrir Milljarður rís í Hörpu sem fer fram í hádeginu í dag, nánar tiltekið klukkan 12. Tilgangurinn með viðburðinum, sem fer fram á sama tíma víðs vegar um heiminn, er að láta jörðina hristast með dansinum og vekja athygli á mikilvægu málefni. Í ár er dansað gegn ofbeldi á konum á flótta sem eru berskjaldaðar fyrir bæði mansali og kynlífsþrælkun. Viðburðinum hefur verið einkar vel tekið en í fyrra dönsuðu rúmlega 4 þúsund manns víðs vegar um landið. Það er plötusnúðurinn Margeir sem sér um að þeyta skífum, en að þessu sinni mun Svala Björgvins koma fram og flytja smellinn Was That All it Was „Það verður svona næntís nostalgíuþema. Ég er allavega mjög spennt.“ Glamour hvetur alla til að sameinast í dansi í Hörpu sem og annars staðar í hádeginu í dag en á viðburðinum verður einnig til sölu glænýr Fokk ofbeldi-varningur.
Glamour Tíska Mest lesið Nicole Kidman á forsíðu Glamour Glamour KALDA á forsíðu Footwear News Glamour Klæðum okkur upp á kjördag Glamour Brotnaði niður á tískuvikunni í New York Glamour Gucci opnaði tískuvikuna í Mílanó með neglu Glamour Nýtt förðunartrend frá Suður-Kóreu slær í gegn Glamour Dolce & Gabbana viðurkenna hönnunarstuld Glamour Grár varalitur Gigi Hadid Glamour Topshop hefur sölu á brúðarkjólum Glamour Nýjasta herferð Stellu McCartney mynduð á ruslahaugunum Glamour