Dönsum gegn ofbeldi Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 17. febrúar 2017 09:45 Hin árlega dansbylting fer fram í Hörpu í fimmta skipti í dag. Mynd/Hörður Ásbjörnsson „
UN Women stendur fyrir hinni árlega dansbyltingu Milljarði rís í Hörpu er í dag 17. febrúar kl. 12-13 í boði Sónar Reykjavík en auk þess er dansað á 10 stöðum um land allt. Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim. Með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Ofbeldi gegn konum er vandamál um allan heim við hvetjum alla til að taka afstöðu gegn ofbeldinu, mæta og dansa,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Í ár er heiðrað minning Birnu Brjánsdóttur heitinnar en í kjölfar hvarfs hennar í miðborg Reykjavíkur stigu fram fjöldi kvenna og lýstu ótta sínum og óöryggi þegar þær ferðast milli staða á kvöldin og að næturlagi. „Fráfall Birnu snerti okkur öll og okkur fannst liggja beinast við að heiðra minningu Birnu. Við viljum minnast hennar með samstöðu, gleði og krafti þegar þúsundir manna, kvenna og barna koma saman um allt land með samtakamátt að vopni,“segir Inga Dóra. Fimm ár eru liðin frá því viðburðurinn var haldinn í fyrsta skipti, en frá þeim tíma hefur dansbyltingin heldur betur stækkað. „Við höfðum ekki mikla trú á að margir myndu koma og dansa í hádeginu. Það kom því ótrúlega á óvart og var alveg magnað að sjá þúsundir streyma inn í Hörpu til að sýna mótstöðu sína við ofbeldi og finna kraftinn í samtöðunni. Það myndast svo falleg og einstök stemmning þegar; fólk á öllum aldrei mætir og dansar með gleðina að vopni þrátt fyrir að tilgangurinn og undirtónninn sé grafalvarlegur,“ segir hún og bætir við að viðburðurinn stækkar með hverju árinu og við erum þakklát fyrir gott samstarf við Sónar Reykjavík öll þessi ár og Dj Margeir sem hefur séð til þess að dansinn duni í Hörpu frá upphafi.Vigdís Finnbogadóttir dansar gegn ofbeldi. Mynd/Hörður Ásbjörnsson.Í fyrra var slegið aðsóknarmet en tæplega þrjú þúsund manns komu saman í Hörpu, færri komust að en vildu og dansað var á göngum Hörpu. Þess ber einnig að geta að alls dansaði um fjögur þúsund manns um allt land. „Við bjóðum upp á óvænt atriði á hverju ári á Milljarður rís og við lofum að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með atriðið í ár. Það er gaman að tilkynna að í ár mun Svala Björgvins sem var í fararbroddi hljómsveitarinnar Scope,ásamt Dj Margeir ætla að taka næntís smellinn Was it all that was, einstakt tækifæri til að sjá þau koma saman eftir 20 ár. onfettíið sem er algjörlega ómissandi verður sem að sjálfsögðu á sínum stað, reifboltar verða á ferð og flugi um salinn en aðalsmerki viðburðarins er að mæta og tækla óréttlæti með gleði, samstöðu og krafti,“ segir Inga Dóra. Samtakamátturinn er ótrúlegur á landsbyggðinni en aldrei hefur verið dansað jafn víða um landið og í ár. „Í fyrra var dansað á sjö stöðum í ár verða haldnir tólf Milljarður rís viðburðir. Í ár verður dansað í Reykjavík, Akureyri, í Rifi Snæfellsnesi, Ísafirði, Seyðisfirði, Reykjanesbæ, Neskaupstað, Hvammstanga, Borgarnesi, Egilsstöðum, Hólmavík og á Höfn í Hornafirði. Auk þess höfum við heyrt að margir vinnustaðir, skólar og meira að segja leikskólar eru að skipuleggja sína eigin viðburði. Í þessum viðburðum birtist kraftur grasrótarinnar í sinni fallegustu mynd,“ útskýrir Inga Dóra. Milljarðurinn vísar til þeirrar staðreyndar að ein af hverjum þremur konum í heiminum hafa þurft að þola kynferðisofbeldi. Ofbeldi gegn konum og stúlkum er vandamál um allan heim, með því að mæta á Milljarð rís tekur fólk afstöðu gegn kynbundnu ofbeldinu. „Í ár beinum við sjónum að verkefni UN Women, Öruggar borgir, sem vinnur að því að gera borgir öruggari fyrir konur og stúlkur víða um heim. Einföld leið til þess að draga úr ofbeldi er að lýsa upp dimmar götur. Í Nýju Delí hefur ljósastaurum verið komið í borginni, m.a. við strætó biðskýli og á almenningssalernum. í Mexíkóborg hafa sérstakir kvennastrætóar verið settir á laggirnar sem gera konum kleift að ferðast til og frá vinnu óáreittar. UN Women vinnur í samstarfi við borgaryfirvöld víða um heim að einföldum og ódýrum aðgerðum sem miða að því að uppræta og draga úr ofbeldi gegn konum og stúlkum á almenningssvæðum,“ segir hún
Dans Kynferðisofbeldi Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira