Todmobile, Úlfur Úlfur og Síðan skein sól á Bræðslunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. mars 2017 10:08 Röddin hennar Andreu Gylfa mun hljóma á Bræðslunni laugardagskvöldið 29. júlí. Vísir/Stefán
Tónlistarhátíðin Bræðslan fer fram á Borgarfirði Eystra í þrettánda skipti í sumar en laugardaginn heilaga ber upp þann 29. júlí í ár. Magni Ásgeirsson, einn skipuleggjanda hátíðarinnar, er ekki lítið spenntur nú þegar liggur fyrir hverjir troða upp. „Það verður eitthvað fyrir alla. Smá nostalgía, smá nýtt og allt gaman,“ segir Magni. Meðal sveitanna sem spila í ár eru Todmobile, upprunalega Síðan skein sól með Helga Björns í broddi fylkingar og rappsveitin Úlfur Úlfur. „Þetta verður ógeðslega gaman,“ segir Magni en auk fyrrnefndra sveita mun írska söngkonan Lisa Hannigan troða upp með hljómsveit en hún hefur unnið mikið með Damien Rice og sungið á öllum plötum Rice. Bræðslumenn virðast vera með sterka tengingu við Íra en Damien Rice og Gavin James hafa báðir troðið upp og sömuleiðis Skotarnir í Belle & Sebastian á fyrri hátíðum. Þá mun austfirska hljómsveitin MurMur frá Egilsstöðum trylla lýðinn og sömuleiðis Hinemoa. Eins og síðustu ár komast færri að en vilja á Bræðsluna en aðeins 800 miðar eru til sölu. Dæmi eru um að uppselt hafi orðið á hátíðina á nokkrum mínútum. Miðasala hefst miðvikudaginn 8. mars klukkan 10. Bræðsluaðdáendur geta gengið að dagskránni nokkuð vísri. Stóru tónleikarnir eru á laugardagskvöldinu en Magni segir að strákarnir í Já sæll muni standa fyrir dagskrá off venue alla vikuna á undan. Tónleikar verða bæði á Álfakaffi og Fjarðarborg þar sem eitthvað verður fyrir alla. Klassísk, popp, rokk auk þess sem verið er að vinna í dagskrá fyrir börnin á laugardeginum. Sjálfur dvelur Magni í Borgarfirðinum allan júlímánuð þar sem tvennt kemst að. Heyskapur og Bræðslan. Faðir hans er með sauðfjárbú og þar er heyjað í júlí. „Sumarfríið mitt er að heyja og halda Bræðslu. Í þessari röð,“ segir Magni. Hann hafi þó fengið það í gegn að á laugardeginum í Bræðslu er slökkt á traktornum. Ungmennafélag Borgarfjarðar fagnar 100 ára afmæli í ár og verður mikil dagskrá í sumar í tilefni þess. Meðal þess er 23 kílómetra hlaup í kringum Dyrfjöllin helgina á undan. Nú þegar er uppselt í hlaupið en fólk er á biðlista og vonast til að komast að. „Það er lágmark að taka viku í Borgarfirðinum,“ segir Magni.
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf „Þetta parísarhjól sökkar“ Menning Fleiri fréttir Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Sjá meira