Ólafía byrjar í dag: Í fyrsta sinn með atvinnukylfubera Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. mars 2017 07:00 Ólafía Þórunn slær í Ástralíu á dögunum. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur í dag leik á Phoenix Open mótinu sem er hluti af LPGA-mótaröðinni. Þetta er fyrsta mót tímabilsins í Bandaríkjunum og hennar fyrsta síðan hún náði góðum árangri í Ástralíu í síðasta mánuði. Ólafía hefur raunar komist í gegnum niðurskurðinn á báðum mótum sínum til þessa á tímabilinu og situr í 77. sæti peningalistans þrátt fyrir að hafa misst af tveimur sterkum mótum. Sjá einnig: Ólafía í sannkölluðum stjörnuráshóp Hún kom til Íslands eftir mótið í Ástralíu en hélt svo til Norður-Karólínu, þar sem hún varí háskóla á sínum tíma, og æfði í viku. „Þar var frekar kalt og ég spilaði í öllum þeim fötum sem ég gat,“ sagði hún í léttum dúr. „Svo komum við hingað til Phoenix og það hefur verið frekar heitt. Það er áskorun að spila í slíkum hita og þess vegna hef ég verið að æfa eftir hádegi síðustu daga.“ Sjá einnig: Ólafía Þórunn og Valdís Þóra eiga báðar möguleika á að keppa á ÓL í Tokýó Hún segir að það hafi verið erfitt að venjast hlýja loftslaginu í eyðimörkinni. „Á fyrsta degi var ég búin á því eftir 9-10 holur. Maður hefur prófað því ýmislegt á fyrstu vikum ársins en þetta er búið að vera ótrúlega gaman.“Ólafía Þórunn.Vísir/GettyHjálp frá öðrum Ólafía gekk frá samningi við KPMG í síðasta mánuði og er komin með nokkuð stóra umgjörð í kringum sig. Hún er til að mynda með umboðsmann og kylfubera. „Ég gleymdi stundum að segja honum frá hlutunum,“ sagði Ólafía spurð um hvernig henni þætti að vera nú með umboðsmann sem hugaði að öllum hennar málum utan vallarins. „Maður er svo vanur því að sjá um allt sjálfur. Ég er að læra að setja vinnuna yfir aðra og það er allt í lagi að fá stundum hjálp frá öðrum,“ segir hún. Sjá einnig: LPGA golfstjarnan okkar er ekki lofthrædd Kylfuberinn hennar hefur fjórtán ára reynslu af starfinu og valdi Ólafía hann úr hópi umsækjenda. „Hann mun hjálpa mér með heilmargt, eins og að meta aðstæður og fleira slíkt. Hann þekkir alla vellina á mótaröðinni mjög vel og veit hvernig maður á að haga sér. Samstarfið hefur gengið vel hingað til og verður vonandi áframhald á því,“ segir hún.Stórmót handan við hornið Hún segir að það sé ekkert sérstakt sem hún hafi í huga fyrir mótið í Phoenix. Almennt vilji hún halda áfram að bæta sinn leik. „Ég er alltaf að reyna að bæta mig eitthvað smá á öllum sviðum - púttum og slætti - allt hjálpar til. Ef maður á mjög góðan dag í enium þætti þá auðveldar það allt hitt,“ segir hún. Eftir mótið í Phoenix tekur við mót strax um næstu helgi sem fer fram í Kaliforníu. Ef henni gengur vel á þessum tveimur mótum gæti hún fengið þátttökurétt á Ana Inspiration um mánaðarmótin, fyrsta risamóti ársins. „Aðalmarkmiðið mitt fyrir helgina er bara að njóta þess að vera hérna. Ég set mér aldrei nein sérstök niðurstöðumarkmið en ef ég geri allt rétt verður niðurstaðan vonandi góð.“ Ólafía verður eins og áður hefur komið fram í ráshópi með þekktum kylfingum, Cheyenne Woods og Michelle Wie, fyrstu tvo daga mótsins. Hún hefur leik klukkan 14.33 en útsending Golfstöðvarinnar hefst klukkan 22.00 í kvöld.
Golf Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Körfubolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila Enski boltinn „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira