Karlremburnar í Muirfield golfklúbbnum töpuðu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2017 07:00 Konurnar eru mættar í Muirfield golfklúbbinn. Vísir/Getty
Muirfield golfklúbburinn í Skotlandi hefur tekið mikið framfaraskref og að einhverja mati kominn til nútímans. Meðlimir Muirfield golfklúbbsins samþykktu með miklum meirihluti að hleypa konum inn í klúbbinn. 273 ára einokun karlanna er þar með lokið. Telegraph segir frá. Þetta er einkaklúbbur sem hefur haldið í gamlar hefðir. Það vaki mikla athygli þegar karlremburnar í klúbbnum vildu ekki breyta þeirri eldgömlu reglu sem bannaði konum frá aðild í golfklúbbnum. Þetta varð að fjölmiðlamáli þar sem að þessi regla hefði komið í veg fyrir að Muirfield golfklúbburinn fengi að halda opna breska meistaramótið í golfi í framtíðinni. Árið er 2016 og slík regla finnst flestum algjörlega úr takti sem er í gangi í vestrænum heimi í dag. Það kom því ekki á óvart að stjórnmálamenn eins og Nicola Sturgeon, núverandi æðsti ráðherra Skotlands, og David Cameron, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, færu að blanda sér í málið. Meðlimir klúbbsins virðast hinsvegar hafa vaknað af værum karlrembublundi því þeir afnámu kvenna-regluna með miklum meirihluta. Alls tóku um 92 prósent meðlimi þátt í kosningunni og reglubreytingin var samþykkt með 469 atkvæðum á móti 155. Það þurfti tvo þriðju atkvæða til að fella regluna úr gildi og það tókst. Það er ekki bar heiður sem fylgir því að halda opna breska meistaramótið í golfi heldur skilað það um 80 milljónum punda til klúbbsins. Muirfield golfklúbburinn hefur haldið opna breska meistaramótið sextán sinnum og nú er aftur von fyrir klúbbmeðlima að fá að halda eitt af fjórum risamótunum í golfi í sautjánda sinn.
Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira