Hugmynd dótturinnar hrundið í framkvæmd Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. mars 2017 09:45 Fjölskyldutónar hljóma í Hannesarholti á sunnudag hjá Sesselju, Kolbeini Tuma, Gunnhildi, Júlíu og Daða. „
Þetta er allt Gunnhildi, dóttur okkar, að þakka eða kenna. Hún átti hugmyndina,“ segir Daði Kolbeinsson óbóleikari glaðlega um fjölskyldutónleika í Hannesarholti á sunnudaginn klukkan 16. Þar spilar hann ásamt konu sinni, Sesselju Halldórsdóttur víóluleikara, og börnum, Gunnhildi fiðluleikara og Kolbeini Tuma á píanó. Til að fullkomna stemninguna fengu þau vinkonu þeirra allra, Júlíu Mogensen, með á selló. Á dagskránni eru óbókvartettar eftir Mozart og Bach auk fjögurra verka með fiðlu í aðalhlutverki. Þar er meðal annars nýtt einleiksverk sem Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi sérstaklega fyrir Gunnhildi. Daði og Sesselja eiga yfir 40 ára feril að baki með Sinfóníunni og hafa látið þar af föstum störfum. „Það orðaði einhver svo að við værum að útskrifast,“ segir Daði kíminn. Sesselja kveðst enn vera í afleysingum en fá ágætar pásur á milli og þá geti hún sinnt barnabörnunum. Daði tekur í sama streng. „Þegar ég hætti að vinna var ég strax kominn í barnapössun. Svo er ég dálítill golffíkill og stunda skíðagöngu þegar færi er svo ég kann þessu nýja lífi ágætlega.“ Þau hjón kynntust í Sinfóníunni. Sesselja kveðst hafa verið í sveitinni frá 1970 með námshléum. „Margir litu ekki á þetta sem fullt starf en ég get staðfest að svo sé. Tekist er á við nýtt verkefni í hverri viku og því fylgir mikil vinna en hún er skemmtileg.“ Daði er skoskur í grunninn, hann var langt kominn í námi í London þegar hann var beðinn að gerast óbóleikari á Íslandi í nokkrar vikur. „Ég stökk á það, hljóðfæraleikari segir aldrei nei!“ Hann flaug til landsins 23. janúar 1973, daginn sem Vestmanneyjagosið hófst og fyrsta æfing var morguninn eftir. „Ég var að spila í London seint á laugardagskvöld, keyrði norður til Edinborgar til að ná flugi en lenti í byl á leiðinni, festi bílinn og varð að sofa í honum um nóttina. Náði vélinni og flaug þá í fyrsta skipti, nýorðinn 22 ára. Um leið og ég settist var mér rétt dagblað og á forsíðu var frétt um flugslys, þar sem sams konar vél og ég var kominn upp í hafði farist. Við vorum bara tíu farþegarnir, erlendir fréttamenn voru ekki búnir að kveikja á því að koma til Íslands að skoða eldgos. Sjálfur hafði ég ekki hugmynd um það en eftir þriggja tíma flug var mikið talað á íslensku í talkerfið, þá var flugstjórinn að reyna að gefa útsýni yfir gosið en tókst ekki, það var svo lágskýjað.“ Daði segir æðislegt að búa á Íslandi. „Hér hef ég fengið tækifæri sem ég hefði aldrei fengið annars staðar,“ segir hann og nefnir þar einleik með Sinfóníunni og þátttöku í Kammersveit Reykjavíkur og Blásarakvintett Reykjavíkur. Að ógleymdu einkalífinu. „Við Sesselja rugluðum saman reytum 1980. Hún var ákveðin í að segja ekki já fyrr en öruggt væri að ég ílentist á Íslandi. Ákvörðunin var mín, svo fórum við að búa!“ Spurð hvort fjölskyldutónleikarnir á sunnudaginn séu kannski upphafið að nýjum ferli brosir Sesselja efablandin. „Ég veit það nú ekki en ég vona að allir komist óskaddaðir frá þessu.“ Hún bendir á að hægt sé að fá kaffi í Hannesarholti. „Það er svo huggulegt þar að mann langar helst að setjast þar að.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. mars 2017
Menning Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira