Í grunninn er byggingakerfi LW einfalt, en þegar kemur að flóknari byggingum er umgjörðin í kringum verknaðinn ekki mjög notendavæn.
Til að byrja með er réttast að taka fram að ég er mikill aðdáandi LEGO leikjanna. Þar má oftar en ekki finna skemmtilega spilun, svartan húmor fyrir fullorðna og ýmislegt meira. Ég á þó í smá vandræðum með að átta mig á fyrir hvern LEGO Worlds var gerður.
Þar sem spilarar geta leikið sér við að byggja það sem þeim sýnist, hvort sem þeir eru einir eða með öðrum (á netinu eða split screen í LW), og reyna að drepa drekann ógurlega. Eða ekki. Spilarar ráða sér alveg sjálfir og þar eru mikil líkindi á milli leikjanna, en samt ekki.

Á þeirri ferð safna spilarar einnig teikningum og öðru sem þeir geta svo byggt seinna meir. Þá læra þeir líka að beita byggingartólum leiksins, sem eru óþarfa flókin.
Þar liggur helsti munur leikjanna. Minecraft byggir á einföldum byggingum og frelsi, en LW byggir á frelsi og flóknum byggingum, mjög gróflega séð. Þá er óþarflega flókið að byggja í LW, sem er fylgifiskur þessa mikla framboðs af heimum og misstórum kubbum. Möguleikarnir eru endalausir, sem flækir hlutina.
Þá þvælist umhverfið oft fyrir þegar verið er að byggja. Ég sá stundum ekkert hvað ég var að gera vegna skringilegs sjónarhorns.
Einnig er hægt að setja út á bardaga í LW og stýringu aðalpersónunnar. Hvort sem maður er að berjast með hnefunum, skammbyssum, sverðum eða bogum, er ekkert mið í boði og spilarar lenda oft í því að slá og skjóta út í loftið.
Það er þó ekki eins og fullorðnir hafi ekki líka gaman af því að byggja úr LEGOkubbum, þó það sé á stafrænu formi.
Þegar frelsinu er náð og spilarar eru búnir að safna nægilega mörgum gullkubbum, geta þeir opnað stærri heima og farið að leika sér að vild. Byggja kastala, hús, styttur og margt fleira. Svo má eyðileggja kastala, hús, styttur og margt fleira, sem er ekkert leiðinlegra en að byggja.
Andrúmsloft LEGO Worlds er nokkuð sérstakt og hann er skemmtilegur. Hann lítur vel út og það er lúmskt skemmtilegt að upplifa heimana sem maður reyndi, en gat aldrei, að byggja þegar maður var krakki. Tæknileg atriði eins og byggingartólin, stjórnkerfi, einsleit verkefni og smávægilegir gallar halda honum þó niðri.