Eins og hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás, brot gegn valdstjórn og eignaspjöll Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. apríl 2017 18:39 Hæstiréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. vísir/gva
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í átján mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, brot gegn valdstjórninni og eignaspjöll. Maðurinn hafði í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi. Maðurinn var ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en honum var gefið að sök að hafa slegið mann í andlitið með kylfu, þar sem þeir voru við Fiskislóð í vesturbæ Reykjavíkur í september 2015. Þá var hann sakaður um að hafa veist að starfsmanni verslunar í Reykjavík í júlí 2015, slegið hann ítrekað í höfuð og líkama og tekið hann hálstaki. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa veist að varðstjóra í fangageymslu á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir þjófnað en hann stal rúmfötum úr verslun í Reykjavík, tók svo lampa í búðinni og kastaði honum í rúðu með þeim afleiðingum að rúðan og lampinn eyðilögðust. Braut hann jafnframt rúðu í bíl sem stóð við Bríetartún í Reykjavík, sem og rúðu í skartgripaverslun, ásamt því sem hann stal farsíma og ipad. Maðurinn vildi ekki ekki tjá sig um sakargiftir fyrir dómunum og vildi ekki horfa á upptökur úr eftirlitskerfum. Sagði hann þær enga þýðingu hafa.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira