Búast má við hvassviðri á landinu í dag Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 4. apríl 2017 08:39 Veðurstofan hefur varað við stormi um landið austanvert í dag. Vísir/Vilhelm
Kröpp lægð skammt norðaustur af landinu mun stjórna veðrinu í dag með köldum norðvestan- og vestanáttum. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Stormur verður um landið austanvert og jafnvel rok um tíma eftir hádegi og víða hvassir vindstrengir við fjöll. Hægari vindur verður vestantil á landinu. Snjókoma og síðar él norðantil, en dálítil él fram eftir degi sunnan- og vestanlands. Dregur úr vindi og ofankomu í kvöld og nótt. Gengur í stífa suðaustanátt á morgun með snjókomu eða slyddu, fyrst suðvestantil. Rigning um landið suðvestanvert síðdegis á morgun, en þar hlýnar heldur. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hætt sé við sandfoki á íshröngli ofan af jökli við Jökulsárlón og að búast megi við talsverðu hríðarveðri og kófi frá Skagafirði og austur á Tjörnes.Veðurhorfur á landinu Vestlægátt, víða 10-18 m/s og dálitil él, en þurrt að kalla austantil á landinu. Norðvestan 15-23 með morgninum, hvassast um landið austanvert, en 20-28 austantil síðdegis. Snjókoma og síðar él um landið norðanvert, en úrkomulítið sunnantil. Dregur úr vindi og éljum í kvöld og nótt. Hiti kringum frostmark. Gengur í suðaustan 10-18 á morgun með snjókomu eða slyddu, fyrst suðvestantil, en rigning sunnan- og vestanlands síðdegis og hlýnar heldur.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag: Austan og norðaustan 10-15 m/s á Vestfjörðum og annesjum N-lands, annars hægari vindur. Rigning eða slydda N-til, en smáskúrir á S-verðu landinu. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst.Á föstudag: Suðaustan 8-15 m/s, víða rigning og hiti 3 til 8 stig, en slydda eða snjókoma fram eftir degi NA-lands og hiti nálægt frostmarki.Á laugardag: Norðaustan 8-15 m/s og rigning eða slydda NV-til. Annars hæg suðlæg átt og dálítil rigning, en yfirleitt þurrt á NA- og A-landi. Hiti 1 til 7 stig.Á sunnudag: Norðanátt og snjókoma eða él N-til á landinu, en léttskýjað S-lands. Kólnandi veður.Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en él við NA-ströndina. Fremur kalt.
Veður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira