Fóru á trúnó í brúðkaupi Rorys og eru núna bestu vinir Henry Birgir Gunnarsson skrifar 28. apríl 2017 23:15 Harrington og Garcia er það gustaði á milli þeirra. vísir/getty
Það hefur verið kalt á milli þeirra Sergio Garcia og Padraig Harrington en svo er ekki lengur. Þó svo þeir hafi oft spilað saman, meðal annars í Rydernum, þá hefur verið kalt á milli þeirra. Má rekja kuldann til ársins 2007 á Opna breska. Bæði þá og á PGA-meistaramótinu ári síðar hafði Harrington haft betur gegn Garcia og Spánverjinn tók því illa. Harrington hefur verið tíðrætt um að Garcia sé tapsár og þeir hafa aldrei verið vinir. Vinur þeirra, Rort McIlroy, gifti sig um síðustu helgi og fyrsti maðurinn sem Harrington sá í brúðkaupinu var auðvitað Garcia. Þá var ákveðið að fara á trúnó yfir einu kampavínsglasi. „Samband okkar Sergio hefur aldrei verið betra en það er núna eftir brúðkaupið,“ sagði Harrington. „Við ákváðum að spjalla saman því það var fíll í herberginu hjá okkur. Við höfum ákveðið að leggja ágreiningsefni okkar til hliðar og þetta er miklu betra svona. Það varð að taka á þessu og líf okkar verður betra eftir þetta.“
Golf Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira