Heimsækja Snorra Sturluson og Bjarna Harðar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. apríl 2017 11:15 Eira Björnstad Foss, Kristine Tjøgersen, Hanne Rekdal, Inga Grytås Byrkjeland skipa kvartettinn Tøyen Fil og Klafferi.
Norski kvartettinn Tøyen Fil og Klafferi er kominn hingað til lands og ætlar að halda þrenna tónleika; í Húsafellskirkju í kvöld klukkan 20, í Mengi við Óðinsgötu í Reykjavík á morgun klukkan 21 og í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi á laugardaginn klukkan 14.30. Á efnisskránni er ný og nýleg tónlist frá Íslandi og Noregi. Sveitin hefur í mörg ár verið í samstarfi við tónskáldin Hafdísi Bjarnadóttur og Guðmund Stein Gunnarsson og nýtt verk eftir Guðmund Stein verður einmitt frumflutt í þessari Íslandsheimsókn. Þær stöllur segjast hafa góða reynslu af að spila í Húsafelli. Kirkjan sé notaleg fyrir litla tónleika, auk þess sem þær hafi kynnst skemmtilegu fólki á staðnum. Bókakaffið á Selfossi er ekki bara rekið af Bjarna Harðar heldur líka konu hans, tónskáldinu Elínu Gunnlaugsdóttur. Á tónleikunum þar mun verðlaunahöfundurinn Halldóra Thoroddsen lesa upp úr verkum sínum. Svo er Mengi vinsæll staður í Reykjavík!
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira