Fulltrúadeildin samþykkti að afnema Obamacare en óljóst með öldungadeildina Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 5. maí 2017 07:00 Paul Ryan, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. vísir/EPA
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær að afnema heilbrigðislöggjöf Baracks Obama, fyrrverandi forseta. Löggjöfin var kölluð Obamacare, hét raunar Affordable Care Act. Í hennar í stað var samþykkt ný löggjöf, The American Healthcare Act, eða bandaríska heilbrigðislöggjöfin. Kusu alls 217 með afnáminu og nýju löggjöfinni en 213 á móti. Atkvæði féllu að mestu eftir flokkslínum en þó kusu rúmlega tuttugu Repúblikanar á móti. Nú mun öldungadeild þingsins taka málið fyrir. Þar hafa allnokkrir Repúblikanar lýst efasemdum sínum um ágæti nýju löggjafarinnar. Ljóst er að fáir Repúblikanar mega kjósa gegn frumvarpinu ef það á að ganga í gegn en alls eru 52 af 100 öldungadeildarþingmönnum Repúblikanar. Atkvæðagreiðsla gærdagsins er talin mikill sigur fyrir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og Paul Ryan, forseta fulltrúadeildarinnar. Báðir eru þeir kjörnir sem Repúblikanar. „Mörg okkar hafa beðið í sjö ár eftir að greiða atkvæði um þetta,“ sagði Ryan í gær. Sagði Ryan í ræðu sinni í aðdraganda atkvæðagreiðslu að Obamacare væri að hrynja í sundur. Löggjöfin væri misheppnuð tilraun. Vísaði hann til þess að í Iowa-ríki sé einungis eitt ríkisfyrirtæki sem bjóði upp á sjúkratryggingar. Samkeppnin sé því lítil en nýju löggjöfinni sé ætlað að bæta úr því. Nancy Pelosi, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeildinni, var á öðru máli. „Þetta hörmulega frumvarp hefur mætt fordæmingu nærri allra,“ sagði Pelosi á blaðamannafundi. Þá sagði hún nýja útgáfu þess verri en þá sem frestað var í mars. Sagði hún, sem og aðrir Demókratar, að nýja löggjöfin muni gera það að verkum að færri Bandaríkjamenn geti nálgast heilbrigðisþjónustu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira