CIA kemur á fót aðgerðastöð til að bregðast við Norður Kóreu Birgir Olgeirsson skrifar 11. maí 2017 23:58 Kim Jong Un, leiðtogi Norður Kóreu. Vísir/EPA
Leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, hefur komið á fót aðgerðastöð sem er ætlað að bregðast við þeirri hættu sem stafar af vopnabúri Norður Kóreu og hinum óútreiknanlega leiðtoga Norður Kóreumanna, Kim Jong Un.Greint er frá þessu á vef bandarísku fréttastofunnar CNN en þar segir að stofnun þessarar aðgerðastöðvar muni gera bandarísku leyniþjónustunni kleift að bregðast við þessari ógn af öllum sínum mætti. Aðgerðastöðin verður í höfuðstöðvum bandarísku leyniþjónustunnar í Langley í Virginíu-fylki Bandaríkjanna. Þannig verði hægt að auka samstarf allra sérfræðinga CIA og stjórnenda leyniþjónustunnar til að takast á við þá ógn sem Bandaríkjamenn telja að sé frá Norður Kóreu. Búist er við því að hópurinn, sem mun starfa í þessari aðgerðastöð, muni gefa frá sér skýrslu tvisvar á dag til stjórnar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Stjórnandi bandarísku leyniþjónustunnar, Mike Pompeo, segir stofnun þessarar aðgerðastöðvar beina sjónum leyniþjónustunnar að þeirri miklu ógn sem stafar af Norður Kóreumönnum, en hann segir hernaðaryfirvöld þar í landi hafa fjölgað tilraunum með kjarnorkuvopn og skotflaugum til muna á síðustu mánuðum til að efla vopnabúrið. CNN segir fulltrúa innan bandarísku leyniþjónustunnar búast við því að samstarf við leyniþjónustuna í Suður Kóreu eiga eftir að vera mikið. Þessi ákvörðun CIA er sögð senda skýr skilaboð til Donalds Trump að leyniþjónustan sé vel meðvituð um utanríkisstefnu hans.
Donald Trump Norður-Kórea Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira