Keflvíkingar ætla að vera jafntefliskóngarnir eins og í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2017 21:19 Juraj Grizelj skoraði annað marka Keflavíkurliðsins í kvöld. Vísir/Anton
Selfyssingar komust í toppsæti Inkasso-deildar karla í fótbolta eftir 2-2 jafntefli í Keflavík í kvöld en bæði liðin áttu möguleika á því að komast á toppinn. Selfossliðið komst tvisvar yfir í leiknum en heimamenn náðu að jafna í bæði skiptin. Selfoss er með sjö stig eins og Fylkir en betri markatölur. Árbæingar eiga aftur á móti leik inni. Keflavík hefur enn ekki tapað í Inkasso-deildinni í sumar en jafnteflin eru orðin þrjú í fyrstu fjórum umferðunum. Keflavíkingar gerðu flest jafntefli í Inkasso-deildinni í fyrra og eru á góðri leið með að verða jafntefliskóngarnir annað árið í röð. Keflavík er í þriðja sætinu með einu stigi minna en toppliðin tvö en jafnmörg stig og HK og Þróttur R. sem eiga bæði leik inni. Ingi Rafn Ingibergsson kom Selfossi í 1-0 á 50. mínútu en Juraj Grizelj jafnaði aðeins tveimur mínútum síðar. Keflvíkingar voru líka fljótir að jafna aftur eftir að James Mack kom Selfossi í 2-1 á 63. mínútu. Hólmar Örn Rúnarsson skoraði jöfnunarmark þremur mínútum síðar og það mark tryggði Keflvíkingum eitt stig og þriðja jafntefli sumarsins. Hörður Sveinsson fékk dauðafæri til að tryggja Keflavík öll stigin í lokin en klúðraði upplögðu marktækifæri. Uppplýsingar um markaskorara leiksins eru fengnar frá heimasíðu KSÍ.
Íslenski boltinn Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila Enski boltinn „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sverrir frá Eyjum til FH Sjá meira