Hundaeftirlitið hótaði að taka hundinn Jakob Bjarnar skrifar 24. maí 2017 11:02 Freyja (t.h.) og Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar, hafa eldað grátt silfur vegna málsins.
Freyja Kristinsdóttir dýralæknir, sem gagnrýnt hefur borgaryfirvöld harðlega fyrir það hvernig þau standa að gjaldheimtu fyrir hundahald, segir viðbrögðin við þeirri gagnrýni þá að hundaeftirlitið hafi hótað að taka af henni hund hennar, tíkina Dimmalimm sem er af Border Terrier-kyni. Þetta kemur fram í opnu bréfi hennar til borgaryfirvalda.Ólögmæt skattheimta Freyja hefur staðið í baráttu við borgaryfirvöld um hríð vegna þess sem hún segir óeðlilega gjaldtöku, sem jafnvel stangist á við stjórnarskrá. Hún segir að Reykjavíkurborg hafi vissulega leyfi til að innheimta þjónustugjöld lögum samkvæmt en þau gjöld megi aldrei vera hærri en sem nemur rökstuddum kostnaði við veitta þjónustu eða framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum. Þar telur Freyja pott brotinn, hundaeigendur hafi aldrei fengið að sjá ásættanlegan rökstuðning borgarinnar við hundahaldið. Því sé um ólögmæta skattheimtu að ræða.Vísir hefur fjallað um mál hennar en Freyja segir kostnað við hundaeftirlit ekki í nokkru samhengi við þjónustu sem hundaeigendur njóta og því sé um óbeina skattheimtu að ræða sem stangast á við stjórnarskrá.Grunsamlega hár launakostnaður Hún segir launakostnað grunsamlega háan miðað við verkefnin og gerir ráð fyrir því að hundaeigendum sé gert að fjármagna aðra starfsemi borgarinnar: „Í bókhaldi hundaeftirlits kemur fram að tekjur af hundaleyfisgjöldum árið 2015 hafi verið 35 milljónir króna. Meðal útgjalda kemur fram að launakostnaður hafi verið 23,5 milljónir króna.“ En, eins og fram kemur í hinu opna bréfi hennar uppskar hún það eitt að vera hótað því að vera svipt hundi sínum: „Þar sem hundaeftirlitið hefur nú hótað því að fjarlægja hundinn minn og koma honum fyrir í hundageymslu, sé ég ekki aðra úrkosti en að skrá hundinn og greiða gjaldið. Ég er almennt löghlýðinn borgari, en ég tók upp á borgarlegri óhlýðni til að vekja athygli almennings á lögbroti Reykjavíkurborgar og þeim órétti sem hundaeigendur eru beittir. Ég tel eftir sem áður að lögbrot Reykjavíkurborgar sé mun alvarlegra en brot mitt gegn hundasamþykkt Reykjavíkurborgar,“ segir Freyja.
Tengdar fréttir Hundaeigendur telja sig eiga undir högg að sækja Félag ábyrgra hundaeigenda gagnrýnir ráðstöfun hundagjalda harðlega. 10. mars 2017 15:03 Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira
Hundaeigendur telja sig eiga undir högg að sækja Félag ábyrgra hundaeigenda gagnrýnir ráðstöfun hundagjalda harðlega. 10. mars 2017 15:03