Fannar Ingi og Berglind fögnuðu sigri í Leirunni 21. maí 2017 19:22 Fannar og Berglind eftir verðlaunaafhendinguna í Leirunni. Vísir/GSÍ
Fannar Ingi Steingrímsson, 19 ára kylfingur úr GHG, fagnaði sínum fyrsta sigri á Eimskipsmótaröðinni á Hólmsvelli í Leiru í dag er hann kom í hús á fimm höggum undir pari eftir þrjá hringi. Þá vann Berglind Björnsdóttir úr GR fimmta sigur sinn á ferlinum á Eimskipsmótaröðinni. Fannar lék fyrsta hring mótsins á einu höggi yfir pari en kom sér í góða stöðu með því að leika á fimm höggum undir pari. Lék hann lokahringinn á einu höggi undir pari og lauk leik með þriggja högga forskot á Ragnar Már Garðarsson úr GKG. Dagbjartur Sigurbrandsson og Ingvar Andri Magnússon úr GR deildu 3-4. sæti en þeir eru 14 og 17 ára gamlir. Í kvennaflokki var það Íslandsmeistarinn í holukeppni frá síðasta sumri, Berglind, sem sigraði á mótinu í Leirunni en hún kom í hús á tveimur höggum yfir pari og lauk leik á sex höggum yfir pari. Háði hún baráttu við Ragnhildi Kristinsdóttir úr GR á lokahringnum en Ragnhildur er einmitt stigameistari síðasta árs á Eimskipsmótaröðinni. Næsta mót fer fram þann 2-4. júní næstkomandi á Hamarsvelli í Borgarnesi áður en tekur við Íslandsmótið í holukeppni í Vestmannaeyjum og Íslandsmótið í höggleik í Hvaleyrinni.
Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira